Svitaball í kvöld...Allir að mæta. Ég lofa miklu stuði enda er það Atli Bolla (3. sæti) sem mun leika fyrir dansi ásamt hljómsveit sinni Nortón. Annars fór hluti dagsins í að kveðja Helgu vinkonu. Hún er á leið til Spánar með sínum heitelskaða Þóri. Ég verð nú að viðurkenna að ég er frekar súr yfir þessu öllu saman. Missa enn aðra vinkonu úr landi...
Annars er mikið stuð í kosningarmiðstöðinni þessa dagana á Laugarveginum. Hvet vini og velunnara til að kíkja í kaffi.
Já og fyrir ykkur sem forvitin eruð þá er blaðið okkar komið út, 40 síðna doðrantur sem keyrður verður til nemenda Háskólans um helgina...verði ykkur að góðu!
Sígó eða hjólastóll...Hvernig ætli það sé að vera fatlaður nemandi í Háskólanum og fá í hendurnar nýjasta málgagn meirihluta Stúdentaráðs. Fletti maður upp á helstu baráttumálum á sviði jafnréttis- og öryggismála er fyrsta mál ekki lækkun þröskulda, nothæfir rampar eða annað nothæft. Ó nei... aðstaða reykingarmanna er eftst á blaði. Meiri segja reykingarfólk getur sammælst um það að mikilvægara er að tryggja aðgang hreyfihamlaðra að byggingum Háskólans en að setja upp sérstaka reykingarstaði við háskólabyggingar... Alveg ótrúlegt. Til að bæta gráu ofan á kolsvart er ekkert minnst á aðgengismál fatlaðra!!
Hvað er að gerast!!Stúdentaráð Háskólans hefur slitið öllu samstarfi við námsmannahreyfingarnar. Það eru eflaust ekki allir sem vita hvað þetta þýðir en þetta eru ótrúlegustu fréttir síðustu daga. Ef þið viljið kynna ykkur málin tékkið á
bisn.is.
Annars skelli ég bara fréttatilkynningunni frá þeim hér... hið ótrúlegasta mál!!
Tilkynning (02. febrúar 2005)
Stúdentaráð Háskóla Íslands (SHÍ),
undir forystu Vöku, hefur slitið samstarfi við námsmannahreyfingarnar Bandalag íslenskra námsmanna (BÍSN), Iðnnemasamband Íslands (INSÍ) og Samband íslenskra námsmanna (SÍNE).
Eftir lánasjóðsfund á síðastliðinn föstudag þar sem SHÍ sýndi ekki vilja til samstarfs er ljóst að samstarfi hreyfinganna við SHÍ sé formlega lokið. Þykir okkur það mikið miður því í heilt ár hefur verið reynt að viðhalda samstarfi og samstarfsgrundvelli og hefur það gengið brösuglega, en því miður hefur SHÍ ekki sýnt vilja til frekara samstarfs.
Við þökkum SHÍ samstarfið undanfarin ár og vonum að það verði í náinni framtíð flötur fyrir því að hefja aftur samstarf, þar sem námsmannahreyfingarnar mæta sterkast inn í samningaviðræður við stjórn LÍN sem ein sterk heild.
Merkilegt... finnst ykkur ekki!!
Við suðumark...Það er allt á fullu. Það er ótrúleg stemmning í hópunum þessa dagana. Það fer óðum að styttast í kosningar ótrúlegt en satt. En orkan fer stig vaxandi þessa dagana. Þreyttan var meiri fyrir baráttuna en núna er maður kominn í ham... ég veit að þetta hljómar undarlega en því meiri vinna því meiri kraftur. Annars er ég ótrúlega ánægð með listann. Frábært fólk sem fyllir listana... algjör draumalisti. Þrátt fyrir að vera með Röskvu á heilanum þessa dagana sinni ég þó mínum skyldum og gerist móðir alla miðvikudagsmorgna. Við Heiða ætlum að taka Hressingarskálann með trompi á morgun. Þetta verður kveðjumáltíð fyrir Helgu vinkonu sem er á leið til Spánar fyrir fullt og allt... alla vegana fram á haust. Hennar verður sárt saknað eins og Jóhönnu, Guðnýju og allra hinna. En ef þið viljið ná tali af mér þá er Laugavegur 66 staðurinn.
Lífið gengur sinn óvanagang þessa dagana. Jebb, við erum flutt þið sem ekki vissuð. Þessa dagana búum við á Laugavegi 66 í verslunarhúsnæði. Þetta er kjörningur og kosningastönt. Við helgum Röskvu líf okkar þessa dagana. Tölum um Röskvu, hugsum um Röskvu, skrifum um Röskvu, dreymum um Röskvu.... o.s.frv. Þetta er ógeðslega skemmtilegt enda frábært fólk sem býr með okkur í Röskvukommúnunni á Laugaveginum. Við erum það mikið saman að við erum hætt að tala um okkur í eintölu. Annars bendi ég áhugasömum á
roskvu.hi.is sem geymir nýjustu fréttirnar. Annars er svitaballið á föstudaginn, Rös-QUIZ á miðvikudaginn, kosningar í næstu viku, New York mánuði seinna og Svíþjóð fyrir fullt og allt í september.