P O T T U R I N N
  potturinn.com - Heitur allan daginn





 





16.8.02
Flutningur
Vefurinn hefur flutt sig um set. Vinsamlegast farðu hingað.
@ | 14:05 | P

12.8.02
Vefumsjónarkerfi
Í augnablikinu er ég að skoða vefumsjónarkerfi í vinunni minni. Ég held að ókeypis komi ekki til greina þar sem það þarf að vera mjög góður stuðningur við þetta þegar starfsfólk fyrirtækisins fer að nota þennan búnað.

Þau sem koma helst til greina eru: Þetta eru reyndar þau sem koma efst í hugan þegar rætt er um vefumsjónarkerfi. Ef einhverjum dettur einhver önnur góð í hug eða hefur eitthvað gott eða vont um þessi að segja, er sá hinn sami beðinn að senda póst
@ | 17:31 | P

Húsamiðjan og Baugur
Mér finnst það mjög áhugaverð frétt að Baugur sé mjög stór hluthafi í nýja rekstrarfélagi Húsasmiðjunnar. Einhverra hluta vegna átti ég ekki von á því. Þetta er þó ekki í fyrsta skipti sem Húsasmiðjan er tengd við Matvörukeðju sem áhugaverður kostur til að renna saman en í fyrra var heljarinnar mikil umræða um að sameina Húsasmiðjuna Kaupási.

Matvörumarkaðurinn íslenski er auðvitað orðinn það þanin að þessi fyrirtæki eiga ekki möguleika á frekari vexti innan hans og því líklega skynsamlegt að sameina þetta. Það veðrur gaman að sjá hvernig breyting verður á rekstri Húsamiðjunnar við þetta.
@ | 16:46 | P

Útflutningur á lambakjöti
Miðað við fréttir ætlar Guðni Ágústsson að hafna aukinni slátrun á fé í haust til útflutnings með þeim orðum að bændur eigi að einbeita sér að framleiðslu á innlendan markað. Þetta er makalaus þvæla, á sama tíma og verið er að reyna að skjóta fótum undir sauðfjárbændur og koma íslensku lambakjöti á markaði sem eru tilbúnir að greiða hærra fé fyrir féð en það sem gengur og gerist innanlands.

Það sem er fyrst og fremst áhugavert við þetta er að þessi ákvörðun skuli vera inn á borði Landbúnaðarráðherra en ekki að markaðurinn skuli vera láttinn ráða. Ef þessir erlendu kaupendur eru tilbúnir að greiða hærra verð en það sem íslensku kaupendurnir eru tilbúnir að greiða því má ekki selja þeim?
@ | 16:08 | P

Fárviðrinu lokið
Þá er fárviðrinu lokið. Hóruhúsinu hefur verið lokað og komin tilkynning kominn á síðuna að þetta hafi verið grín og þessu hafi verið lokað. Eftir það var linkurinn inn á pottinn tekinn út af tilverunni. Það voru tæplega 3 þúsund gestir sem litu hingað inn á síðustu dögum að forvitnast hvað var að baki hóruhúsins.

Ég er viss um að Gústi hafi lært nokkuð af þessu og hugsi sig tvisvar um áður en hann birtir slíkan local húmor aftur á alnetinu undir réttu nafni. Eftir því sem virðist á síðunni er þetta lén til sölu fyrir lítin 25 þ kall ef einhverjum langar til að stofna alvöru hóruhús á netinu!
@ | 15:29 | P

Bann á einkadansi er forræðishyggja
Þetta er haft eftir Gunnari Birgissyni um bann á nektardansi í Kópavogi.

Ég er auðvitað sammála Gunnari með þetta og feginn að hann skuli vera tilbúinn að berjast fyrir þessu. Í Kópavogi eru þessir staðir niðurkomnir í iðnaðarhverfi þar sem "venjulegt" fólk verður ekki vart við þessa iðju. Þetta er því ekkert lýti á bæinn.
,,Ef bæði dansarinn og sá sem greiðir gerir þetta af fúsum og frjálsum vilja þá finnst mér að yfirvöld eigi ekki að vera að skipta sér af því," segir Gunnar.
Þarna er einmitt hundurinn grafinn. Ég veit ekki hvort fólk haldi virkilega að þetta muni hverfa með því að þetta verði gert að neðanjarðarstarfsemi?
@ | 15:20 | P

Er Háskólinn vísvitandi að okra á nemendum sínum?

Háskólinn sendi greiðsluseðla heim til nemenda Háskólans örfáum dögum áður en greiða átti greiðsluseðilinn. Eftir gjalddaga hækkaði greiðslan um 15%. Greiðsluseðlarnir voru sendir til nemenda nánast á sama dag og nemendaskrifstofan fór í sumarfrí þannig að ekki var nokkur leið til að hafa samband við nokkurn mann til að fá svör hverning stæði á þessu og hvað væri hægt að gera.

Verulegir fjármunir!
Um er að ræða verulega fjármuni fyrir Háskólann. Gerum ráð fyrir að 2000 manns hafi greitt of seint, sem ég tel alls ekki ólíklegt miðað við þann fjölda sem ég þekki og hefur lent í þessu. Greiðsluseðlarnir eru sendir heim á lögheimili nemenda og margir nemendur úti á landi að vinna í bænum, í fríum eða fluttir úr foreldrahúsum en samt enn með lögheimili á þeim stað. Annað var að pósturinn náði oft ekki að berast til fólks innan þess tíma sem átti að greiða seðilinn. Seðilgjaldið hækkaði svo um rúmlega 4600 krónur, tekjuaukning háskólans því um 9 milljónir króna.

Engin svör frá Háskólanum
Núna eru allir komnir til baka úr sumarfríum enn ber þó lítið á svörum frá Háskólanum. Maður getur því ekki annað en dregið þá ályktun að vísvitandi aðgerð hafi verið að ræða hjá Háskólanum. T.d. hefur ekkert komið frá Rektor æðsta yfirmans Háskólans, og því virðist hann bara sáttur við þessa aðgerð. En eins og menn muna var tekinn til baka hluti hækkunarinnar sem búið var að lofa háskólanum.

Sorgleg vinnubrögð
Mér finnst það sorgleg vinnubrögð hjá stofnun eins og Háskólanum að fara fram með þessum hætti og kría út peninga frá fólki sem síst hefur efni á hærri gjöldum. Þessi hækkun er ætluð til þess að hvetja folk til að greiða fyrr til Háskólans en ekki til þess að kría meiri peninga úr nemendum sem vilja greiða á réttum tíma.

@ | 11:58 | P

10.8.02
Ósigur
Í gær voru kosningarnar í Heimdalli. Þórlindur og félagar biðu ósigur.

Það sem stendur upp úr þessum kosningum er mun þéttari hópur en áður. Mikil reynsla skapaðist, sérstaklega að vinna svona á mjög stuttum tíma, því ólíkt hinum, þá gafst okkur innan við vika til að undirbúa framboð okkar. Þótt að þessu sinni hafi slagurinn tapast, þá er þetta bara ein bardagi í langri orrustu. Hópurinn hefur sýnt það áður að hann gefst ekki upp þótt móti blási og hópurinn er bara rétt að byrja.

Ég óska þeim sem unnu Heimdall til hamingju með það og vona að þeir geri meira með þann feng en það sem gert var síðasta ári. Heimdallur er svo miklu meira en félag sem á að vera lokaður klúbbur. Fyrir utan smölunina sem á sér stað núna á hverju ári virðist lítið vera gert í því að laða inn nýja félagsmenn.
@ | 14:29 | P

9.8.02
Útvarpsviðtöl í kringum Heimdallskosningarnar
Í dag fara frambjóðendur í tvö útvarpsviðtöl. Annað verður á Útvarpi Sögu um kl: 14:20 og hitt verður á Rás 2 um klukkan 16:30.

Ég kvet alla að leggja við hlustir á þessum tíma til að kynna sér málefnin.

Þangað til bendi ég fólki að lesa heimasíðu framboðs Þórlinds.
@ | 13:45 | P

Local húmor verður meira
Félagi minn úr Menntaskóla, hann Gústi, setti upp heimasíðu í gríni sem hann kallaði Hóruhús.com. Þetta var local húmor hjá honum og vinum hans að það væri fyndið að setja upp "hóruhús" á netinu. Núna hafa greinilega einhverjir komist að þessum local húmor og halda að Gústi sé hórmangari í Reykjavík.

Þetta er auðvitað komið út fyrir grín hjá þeim og vona ég þeirra vegna að þeir taki niður vefinn sem fyrst og útskýrir húmorinn sem lá að baki. Tilveran er alveg að tapa sér í þessu og þeir eru búnir að setja inn link á símaskrá.is þar sem upplýsingar um Gústa birtast.

Trúi fólk því hins vegar að hérna sé um raunverulegt hóruhús að ræða mæli ég með því að fólk sæki um að fá þjónustu eða sæki almennt um og sjái hvað gerist :)
@ | 11:42 | P

Kosningar
Í dag verða kosningar í Heimdalli eins og komið hefur fram á nokkrum stöðum á þessari síðu.

Andstæðingar Þórlinds Kjartanssonar eru mjög kokhraustir á síðunum sínum og segjast vera að fara að vinna þessar kosningar. Það sé ekki spurning hvort heldur hversu mikið. Þeir hafa allan rétt á því að halda þetta en þetta er auðvitað tálsýn ein. Það hefur ekkert breyst að það eru atkvæði á kjörstað sem skipta máli en ekki hversu kokhraustir menn eru út á við.

Í dag voru skrifaðara nokkar athyglisverðar greinar í Morgunblaðið þar sem útgáfa bæklings Þórlinds var gangrýnd. Þar voru vinnubrögð Þórlinds gagnrýnd og sagt að hann beitti bolabrögðum. Staðreyndin er hins vegar sú að Þórlindur hefur staðið í mjög heiðarlegri kosningabaráttu á meðan andstæðingar hafa notað ýmis bolabrögð. Dæmi um þetta er að boða fundinn seint á föstudegi um verslunarmannahelgi. Er það dæmi um vinnubrögð fólks í sáttaleit?

Annað sem stóð í þessum greinum var að taka bæklinginn með efasemdnum því hann væri fullur af dylgjum. Meðal annars var sagt að hann væri borinn út á síðustu dögum fyrir kosningar, varla hefði verið hægt að dreifa þessum bæklingi út áður en fundurinn var boðaður?

Allir sem hafa fylgst eitthvað með í vetur vita að mjög lítið hefur gerst innan Heimdalls og það er kominn tími til þess að breyta starfsháttum innan félagsins. Tími til að fá inn nýjan kraft í félagið. Tími til að kjósa Þórlind sem formann.
@ | 10:15 | P

8.8.02
Kosningar
Eins og hjá ýmsum öðrum hefur heimsóknum farið fjölgandi inn á Pottinn, það sem hefur vakið sérstaka athygli er að fjölmargar heimsóknir hafa komið inn á síðuna frá leitarvélum, þar sem leitað hefur verið að Þórlindi Kjartanssyni.

Framboðið hefur vakið virkilega athygli víðsvegar og er ég búinn að heyra nokkra umræðu um fundinn á föstudaginn. Það má hverjum manni vera ljóst að þetta verður fjörugur fundur á föstudaginn.

Eins og áður bendi ég lesendum á að kynna sér heimasíðu framboðsins og kynna sér þau málefni framboðs Þórlinds. Ég hef fulla trú á því að fólk sem kynni sér þetta komi á föstudaginn og kjósi Þórlind. Þeir sem þekkja Þórlind vita hvers konar kraftur er í honum.
@ | 17:00 | P

Íslenskir hermenn
Ég rakst á vafri mínu á mjög áhugaverðan vef um íslenska hermenn. Þar hefur mannfræðinemi við HÍ tekið saman lista með alla þá sem hann veit að hafi þjónað í herþjónustum. Auk þess sem hann fer yfir tignarröð í ýmsum tegundum hers. Reyndar virðist eitthvað vanta upp á vefin á ýmsum stöðum því það eru víðsvegar brottnir hlekkir.

Slóðin á vefinn er http://www.hi.is/~baldurs/tign.html
@ | 15:32 | P

Smáskemmtun
Þetta er fyndið tól, svona í smástund alla vega.
@ | 10:54 | P

Stórbruni
Það var rosalegt að sjá reykinn sem lá yfir Fákafeninun í gær. Maður fann lyktina alla leið upp í Grafarvog.

Í morgun heyrði ég í fréttum að það logaði enn þá í húsinu.

Þetta er alveg rosalegur bruni, þrátt fyrir að vera bara í kjallaranum veltir maður því fyrir sér hvort húsið sé ekki gjörsamlega ónýtt?
@ | 9:37 | P