Myndasíða!

2007-07-29
SOS d'un terrien en détresse

Bonsoir! Langt er um liðið frá síðasta bloggi, yadayadayada... En lítum nú á það sem á daga okkar hefur drifið síðustu tvær vikur.

Fyrir óvissuferðina

Ósköp lítið gerðist þessa daga. Þess vegna höfum við líklega ekki bloggað fyrr... En vindum okkur strax að helginni sem fylgdi í kjölfarið (þ.e. 20-22. júlí), en þá fórum við til

París(ar)!

Jú, við skruppum í helgarferð til Parísar að fá okkur franskbrauð og vín. Við héldum fjórir saman af stað frá Building 38 (CERN hostel) um hádegisbilið og komum um kvöldmatarleytið til Parísar. Hittum þar fyrir vingjarnlegan frakka á vespu sem aðstoðaði okkur við að finna miðbæinn.

Fundum bílastæðahús og röltum inn í miðbæinn í leit að hosteli og fundum strax eitt sem okkur leist fantavel á. Herbergið reyndar bara fyrir tvær manneskjur, en í svefnherberginu voru 2 stór rúm sem lágu saman - vissulega nóg pláss fyrir okkur fjóra. Nú héldum við sem leið lá í áttina að Eiffelturninum.

Komum að Eiffelturninum eftir 15 mín. göngu og skoðuðum hann aðeins neðanfrá. Fengum okkur síðan Ítalska pizzu á nálægum veitingastað. Fórum síðan á dýrasta djamm fyrri og seinni tíma (miðað við verð í útlöndum).

Daginn eftir fórum við að líta á Louvre safnið, en við nenntum nú ekki inn, enda hægt að skoða flestar myndirnar hérna. Gengum síðan að hyperhringtorginu sem umlykur Sigurbogann og röltum sem leið lá um verslunarstræti Parísar. Keyptum ekkert. Um kvöldið tók við hefðbundið djamm og hittum fyrir undarlegt fólk frá Hollandi/Belgíu sem var læst úti úr hótelinu sínu. Þau gáfu okkur bjór og buðu okkur endilega að koma í heimsókn á barinn þeirra í Belgíu.

Á sunnudaginn vöknuðum við eldhressir að vanda, 3 mínútum áður en við áttum að vera farnir út. Skiptir engum togum, nema við rukum út og fórum í bílinn. Nú áttum við aðeins eftir að skoða tvo hluti í París. Notre Dame og Focule pendúlinn. Okkur fannst Focule pendúllinn fremur dull - en hann skákaði ND nú samt.. Fórum samt ekki inn í ND þar sem það var endalaus biðröð inn.

Að þessu loknu héldum við aftur heim í heiða dalinn. Hér ber einnig að segja frá því að við fundum lag ferðarinnar. Hlekkur á lagið er falið í þessari bloggfærslu.

Síðasta vika

Á þriðjudaginn fórum við í almenna CMS (Compact Muon Solinoid detector en ekki hvað..) heimsókn. Hlynsi var reyndar búinn að sjá hann áður - en engu að síður var gaman fyrir okkur að fá að líta þetta flykki sem er þyngsti neminn í LHC tilrauninni (~13000 tonn). Hann er einnig þyngri en Eiffelturninn (~7000 tonn)

Á miðvikudaginn fórum við í Hollenskt partí sem var frekar svipað hinu Franska - að undanskyldu matnum og guðaveigunum. Tónlistin var aðeins betri og lýsingin aðeins ólíkari frystihúsalýsingu Franska partísins.

Fórum svo á "Simpsons, le film" á föstudaginn ásamt Flippa (Phillip), Daniel þjóðverja, Olek Hössavini, frakka og 3 portúgölum. Myndin var nú ekki svo galin og skemmtum við okkur hið bezta. Hlynur hélt síðan heim með Olek því hann þurfti að vakna snemma daginn eftir, en við hinir fórum í bæinn og fengum okkur ógeðslegan bjórturn. Sem er ekki frásögu færandi.

Síðasta helgin

Sem fyrr sagði þurfti Hlynsi að vakna snemma. Hann var semsagt að fara í Rafting ásamt 11 öðrum Summies. Hlynur sá ljósið koma og alles þegar bátnum hvolfdi. Að vanda hugsaði hann ekki um sjálfan sig og bjargaði einum frænda okkar frá Danmörku úr bráðri lífshættu ásamt þvi að safna saman öllum árunum sem hinir misstu. Enda með gríðarlega reynslu úr Jökulsá Eystri.

Meðan hann gekk gegnum þessar ógöngur fóru Frikki og Tommi í sund og tóku smá á þvi. Síðan héldu þeir í Genf til að fara í klippingu ásamt Flippa. Það gekk furðuvel að fá sæmilega klippingu miðað við að hárgreiðslufólkið talaði mjög takmarkaða ensku - gekk þó eftir smá handapat og látbragð. Sáttir héldu þeir svo í miðbæinn til móts við Hlynsa, Tommi eins og af fermingarmyndinni sinni Frikki eins og 12 ára gutti frá 1899.

Tókum strætó til CERN með viðkomu í matvöruverslun. Héldum síðan aftur í Genf til móts við Alex (annar íslendingur sem er á svæðinu). Tókum einn kaldan miðsvæðis í gömlu Genf.

Á sunnudaginn fórum við á Mount Jura - eða Júralfjöllin sem er u.þ.b. 1000 metra hæð frá rótum. Við röltum upp einn stíginn en komumst fljótt í raun um að hér var um extreme-mountainbike hjólreiðastíg að ræða. Það var semsagt frekar brött malarbrekka upp einn kílómeter. Skiptir engum togum, nema við komumst á toppinn og fengum þetta svaka útrýni yfir Genfardalinn. Hlynsi svitnaði allsvakalega og fórnaði Frikki peysunni sinni þegar á toppinn var komið til að halda hlýjunni á Hlyni. Röltum/skokkuðum aftur niður eftir smá dvöl á toppinum. Tvær klst. upp, tæplega ein niður. Peysan hans Frikka var brennd eftir ferðina.

Síðan fórum við heim í sturtu, fengum okkur mat og blogguðum.

Síðasta setningin

Þá er ekki fleira að frétta í kvöld, veriði sæl.

kveðja, Frikki, Hlynsi, Tommi

E.S.: Nýjar myndir!

Athugasemdir (136)



2007-07-15
Tóga, Lederhosen og Bastillan

Sögumaður:Í síðasta bloggi voru strákarnir rétt byrjaðir að koma sér fyrir, en þá óraði ekki fyrir því sem á daga þeirra myndi drífa næstu daga. Fáum nú æsispennandi framhald á sögunni:
Nú eru fyrirlestrarnir farnir að verða aðeins meira hardcore. Ekkert introductionary dæmi í gangi hérna. Enn eru þó stakir brandarar inná milli hjá fyrirlesurunum. Sem heldur okkur oftast frá svefni - þó gott að hafa klakaglasið við hendina til að vekja sig.

Hvað um það! Við erum einnig að komast á skrið í "vinnunum" okkar. Við erum - eins og allir aðrir Summies að því er virðist - að forrita í vinnunni. Mis-tengt eðlisfræði, en maður kynnist ýmsum aspektum LHC verkefnisins gegnum þessa vinnu. Eins og sjá má erum við farnir að sletta ensku eins og alvöru heimsborgarar.

Talandi um heimsborgabrag - þá ætlum við að taka smá túr á næstu helgi. Details eru ekki alveg ákveðin - en við ætlum að taka rúnt með Phillip. Phillip á bíl :) Meira um þessa ferð í næstu færslu.

Á miðvikudaginn var svo haldið þemapartí. Nema hvað, að það var Tógapartí. Þarna voru Kanarnir á ferðinni, að venju. Annars var þetta fremur normalt partý. Meira svona eins og hefðbundið kvöldchill. Í tóga (og nei, við vorum ekki í tóga svo það þýðir ekki að biðja um myndir).

Á fimmtudaginn voru rólegheitin ráðandi. Fyrir utan það að hér kom sólin aftur upp! Yay! Við fórum út að synda í fyrsta sinn í lítilli tennis/skvass/sundlaug. Ágætis sundlaug það.

Föstudagurinn byrjaði einnig vel. Sólin kom aftur upp, með ennþá meiri hlýju. Við fundum "flyer" um nýjan ekta Biergarten sem átti að opna um kvöldið, svo vitanlega létum við okkur ekki vanta. Við gengum áleiðis - eins og á "kortinu" sem var á auglýsingunni. Það kom í ljós að það var ekki nákvæmt kort. Eftir um 40 mínútna göngu komum við loks á staðinn. First impression lofaði ekki góðu. Við héldum fyrst þetta væri ræktunarskáli fyrir sólblómaakur, en bjórgarðurinn var semsagt inni í miðju engi sólblóma. Þar voru 4 borð og 4 bjórar og 4 glös. Skiptir engum togum nema við ásamt fleiri Summies kláruðum bjórinn á svæðinu - en það var c.a. 1.5 bjór á mann. Röltum aftur í CERN með viðkomu í franska bænum Saint Genis. Fengum okkur eplabjór þar. Hann var góður. Svo var púlsinn tekinn á restaurant 1 - en þar var lítið um að vera svo við héldum á hostelið.

Ekki gerðum við minna á laugardaginn. Eftir staðgóðan morgunmat fórum við loks að skoða Genf almennilega! Fórum í nokkrar búðir að leita að framköllun, og chilluðum við Genfarvatn meðan verið var að framkalla. Seint og síðar héldum við aftur til CERN til að ná næsta partýi - en eins og flestir vita var þennan dag þjóðhátíðardagur frakka. Frönsku krakkarnir í CERN héldu upp á daginn með veislu um kvöldið þar sem boðið var upp á franska drykki og mat. Drykkirnir voru ekkert sérstakir, en maturinn svosem sæmilegur. Partíið var haldið í vöruskemmu sem áður hýsti geislavirk efni.

Þetta partí gaf okkur nýja sýn á hópinn. Greinilegt var að hluti hópsins var ekki vanur guðaveigum svo það var mikið stuð á því liði. Annar einkenndist kvöldið mest af nettu mingli þar til dansinn tók að duna. Svosem ekki meira að segja frá því.

Í dag, sunnudag, fundum við nýja sundlaug. Hún verður okkar uppáhalds. Aðeins lengra í burtu, og örlítið dýrari, en mun meiri stemmari. Þar var gnægð sundlauga og fólks á öllum aldri og gerðum. Þar gat einnig á að líta stærstu rennibraut miðað við lendingarsvæðið. Við slöppuðum þar af í um 3 tíma og syntum og brunnum. Síðan héldum við heim, brutum brauð og þvoðum þvott. Stefnan er á cheeze and whine í Genf í kvöld. All-u-can-eat af bráðnum osti. Það verður spes..

Jæja, ekkert meir að segja frá í bili. Au revoir!

kveðja,
Frikki, Hlynsi, Tommi

E.S.: Nýjar myndir komnar inn!

Athugasemdir (1)



2007-07-08
Rigning

Sæl krakkar mínir!

Jæja! Kominn tími á fyrstu vefdagbókarfærsluna okkar - lesist "blag" (blg) - enda nærri vika síðan við komum hingað.

Við mættum hressir á CERN site á sunnudagskvöldið og var það hann Felix sem var fyrstur til að taka á móti okkur. En hann virtist vera aðaltöffarinn á svæðinu. En annað átti eftir að koma í ljós!

Við semsagt gistum í þremur mismunandi herbergjum á þremur mismunandi hæðum. Hlynur einn í einsmanna herbergi, Frikki einn með tvöfalt lúxusherbergi með sturtu og hvaðeina og Tommi geymdur í kjallaranum með Andrew frá Möltu.

Næsta morgun vaknaði Hlynur við það að indverskur dvergur var hlaupandi um herbergið hans. Hann dreif sig því á fætur og vakti hina. Mánudagurinn fór að mestu í skrásetningu í gagnabanka CERN nema fyrir Tomma - það tók 3 daga og minnti talsvert á eina þraut úr "Ástrík og Þrautirnar 12". Við hittum svo hópleiðtogana okkar og sáum vinnuumhverfið okkar sem er misjafnt.

Á þriðjudaginn gerðum við eins og Frímann Gunnars - skruppum til Frakklands að versla. Lítið annað gerðist þá markverkt.

Á miðvikudaginn hófust fyrirlestrarnir. Aðallega smá introduction og horfðum á cheezy myndband um CERN. Síðar um daginn var svo "Welcome drink" þar sem nemarnir áttu að kynnast. Við hittum þar fyrir japana sem heitir Hiro. Gaman að því. En skemmtilegast var kvöldið í teiti sem amerikanarnir héldu í tilefni 4. júlí.

Þar vakti íslenskur þjóðdrykkur mismikla lukku. Við ættum að vekja þess hér máls að lyfturnar í húsinu sem við vorum í bila c.a. einu sinni á dag. En við ákváðum semsagt eftir þetta teiti að taka lyftu uppá 5. hæð (6. hæð á Íslandi). Nema hvað, að lyftan festist akkúrat milli 4 og 5 hæðar. Þar sem við vildum ekki ýta á bjölluhnappinn ákváðum við að reyna að opna dyrnar sjálfir. Eigum því miður engar myndir, en við skulum segja það að ytri lyftuhurðin opnaðist ekki alveg sem skyldi, en fannst okkur þetta vera eins og atriði úr Mission Impossible.

Fimmtudagurinn hófst eins og flestir aðrir dagar. Sólin kom upp, bak við rigningarský.. Fyrirlestrar og svo vinna. Borðuðum saman eftir vinnu eins og vanalega og chilluðum frameftir kvöldi.

Föstudagurinn var spennandi dagur. Fyrir það að þá var helgin að byrja :) Dagurinn leið eins og venjulega og svo borðuðum við saman. Frikki fór reyndar að skoða Atlas. Hlynur og Tommi eiga það eftir. Svo var chillað og hlustað á tónlist ásamt slatta af nemum (ekki detectorum...) fyrir utan restaurant (aðal matsölustaðinn).

Laugardagurinn hóftst á undarlegan máta. Bæði voru hvorugt fyrirlestrar né ský fyrir sólu! Yay! Fengum okkur að borða og röltum til Frakklands. Datt í hug að leita að McDonaldsstað sem við sáum auglýstan á skilti. Fórum e-rsstaðar til vinstri og fórum lengst útí sveit - en komumst ekki yfir e-n þjóðveg fyrr en yfir e-a brú.. Skiptir engum togum, nema við fundum ekki staðinn, og komumst loks eftir langa göngu aftur í siðmenninguna og fórum að versla í St. Genis. Svo var haldið heim og chillað til 16:00.

Málið var það að kl. 16:00 ætluðum við að fara á "Lake Parade" við Genfarvatn ásamt nokkrum öðrum Summies (e.g. Summer Student Programme students..). Lake Parade er semsagt svipað Gay Pride að flestu nema kynhneigðinni. Og nafninu. Þetta voru semsagt slatti af trukkum sem rúntuðu e-n hring um vatnið (yfir brú ofl.) með tónlist og fólki í búningum. Síðan fórum við að eta og fórum þvínæst aftur að hátíðinni, en þá var búið að leggja trukkunum við vatnið og var þar djammstemmari til 3 um nóttina. Við reyndar fórum um 11 heim vegna þreytu og við vorum með 3 bakpoka og undarlegt samferðafólk...

Sunnudagur. Chill. Borða. Chill. Chill. Borða. Chill. Blogga :)

Athugið að Frikki er með myndasíðu þar sem við setjum inn myndir öðru hverju.

Athugasemdir (5)