Aðalfundur Röskvu verður haldinn fimmtudaginn, 6. mars á Kaffi Viktor kl. 20:00.
Röskva sigraði í gær kosningar til Stúdentaráðs og Háskólaráðs með sex atkvæða mun!
Ljóst er að allir sem lögðu hönd á plóg áttu jafnan þátt í sigrunum og erum við innilega þakklát öllum þeim sem studdu okkur, kusu og hjálpuðu.
Stúdentaráðsliðar Röskvu 2008-9 verða eftirfarandi:Miðvikudaginn 5. mars verður hið stórskemmtilega Rösquiz haldið í Hámu á Háskólatorgi kl 20.00. Það hinn ofurhressi mannfræðinemi, Ugla Egilsdóttir sem er Qiuzmeistari kvöldsins og þemað eru ljóskubrandarar.
Reglurnar eru einfaldar. Tveir eru saman í liði, 100 krónu þátttökugjald á mann, frír bjór á barnum sé bjórspurningunni svarað rétt og svellköld kippa af bjór fyrir sigurvegarana. Rösquizin hafa þótt einstaklega skemmtileg, bæði fyrir áhugamenn um spurningakeppnir, en eins fyrir þá sem hafa gaman af því að hitta samnemendur sína, drekka bjór, spjalla saman og hafa það notalegt.
Allir eru velkomnir!