Heimasíða Magnúsar Jóhannssonar læknis

prófessors í lyfjafræði (líflyfjafræði)

Lyfjafræðistofnun Háskóla Íslands,
Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði, 
Haga við Hofsvallagötu, 107 Reykjavík

sími 525 5125  bréfsími 525 5140

This page in english  

Nám og störf (CV) (neðar á þessari síðu) Kennsla  (kennsla M.J.) 
Rannsóknir
(sjá einnig undir Lyfjafræðistofnun)
 
Ritverk (recent publications)  Áhugaverðir staðir á Netinu    
                 (þessi síða án ramma (frames))
Rannsóknastofa í lyfja- og eiturefnafræði  Almenningsfræðsla
Tenglar            Rótarýklúbburinn Borgir Námskeið á vegum Endurmenntar Háskóla Íslands og rannsóknanámsnefndar læknadeildar (3. árs verkefnið) 

Tölvupóstur til Magnúsar Jóhannssonar   

Þessi síða síðast uppfærð 15.01.2008


Magnús Jóhannsson -- nám og störf

------------------------------------------------------------------

Fæddur í Reykjavík 8. maí 1942 (kennitala: 080542-3139).

Nám og próf:

  Stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík 1962.
  Embættispróf í læknisfræði frá Háskóla Íslands 1969.
  Doktorspróf (med.dr.) við Háskólann í Lundi, Svíþjóð, í desember 1974.

Störf:

  Þjálfun og rannsóknavinna í líflyfjafræði (lyfjafræði lækna) við Farmakologiska Institutionen við háskólann í Lundi, Svíþjóð.
  Kennsla í lyfjafræði við Hjúkrunarskólann í Lundi og á fjölmörgum framhaldsnámskeiðum fyrir hjúkrunarfræðinga á Skáni 1970-1974.
  Kennsla (amanuens) í lyfjafræði við læknadeild Háskólans í Lundi og Tannlæknaskólann í Malmö á árunum 1970-1974.
  Aðstoðarlæknisstörf í Reykjavík og Svíþjóð 1969, 1970 og 1975.
  Lektor í fullu starfi við læknadeild Háskóla Íslands frá 1. jan. 1975.
  Dósent í fullu starfi við læknadeild Háskóla Íslands frá 1. júlí 1977.
  Prófessor við læknadeild Háskóla Íslands frá 1. febrúar 1987.
  Í Lyfjanefnd 1976-1997.
  Yfirlæknir hjá Lyfjastofnun (áður Lyfjanefnd ríkisins)(48% staða) frá febrúar 1997.
  Stjórnarformaður Lyfjafræðistofnunar H.Í. frá maí 1997.
  Forstöðumaður Rannsóknastofu í lyfjafræði við H.Í. frá september 1998. 
  Fulltrúi Íslands í sérfræðinganefnd (CPMP og síðar CHMP) evrópsku lyfjastofnunarinnar (EMEA) síðan í jan. 1999. 
  Hefur haldið námskeið á vegum Endurmenntunarstofnunar Háskólans um hagnýta líftölfræði, árlega síðan 1994 og um skipulag klíniskra rannsókna (með öðrum) 1998 og  árlega síðan 2000. 
  Hefur verið ritrýnir fyrir tímaritin Cardiovascular Research og Pharmacology & Toxicology og Læknablaðið til fjölda ára. 

Leyfi:

  Almennt lækningaleyfi á Íslandi síðan 1976.
  Sérfræðiviðurkenning (lyfjafræði lækna) síðan 1976.

Námsferðir:

  Rannsóknavinna í Lundi í 3 vikur vorið 1975, í 3 mánuði sumarið 1976, í 3 vikur sumarið 1978 og fjölmargar styttri ferðir þangað síðan.
  Ársdvöl við rannsóknastörf á lyfjafræðistofnun Háskólans í Kiel, Þýskalandi, sem styrkþegi Alexander von Humboldt stofnunarinnar, 1982. Á þessum tíma var farið í ýmsar fyrirlestra- og kynnisferðir um Þýskaland.

Námskeið:

  Á árunum 1972-1974 viðamikil námskeið (hluti af doktorsnámi), sem enduðu með prófi, í stærðfræði, tölfræði, rafeindafræði og ísótópatækni.
  Námskeið (3 heilir dagar) í lyfjahvarfafræði í Uppsölum í Svíþjóð 1985.
  Námskeið í læknisfræðilegum gagnasöfnum og leit í þeim á vegum Endurmenntunarnefndar Háskólans 1986.

Styrkir:

  Á árunum 1970-1973 dvalarstyrkir úr Vísindasjóði, styrkur úr Novo Fond auk nokkurra smærri sænskra styrkja.
  1977 styrkur úr Vísindasjóði til tækjakaupa.
  1982 styrkur frá Alexander von Humboldt Stofnuninni í Vestur-Þýskalandi til árs dvalar í Þýskalandi.
  1983 og 1984 styrkur úr Vísindasjóði til tækjakaupa.
  1986-87 styrkur úr Vísindasjóði til tækjakaupa og til að greiða hálf laun aðstoðarmanns.
  1987 styrkur úr Rannsóknarsjóði Háskólans.
  1988 styrkur úr Verðlaunasjóði Alfreds Benzon.
  1988 styrkur úr Vísindasjóði til tækjakaupa.
  1988 styrkur úr Rannsóknarsjóði Háskólans til að greiða hálf laun aðstoðarmanns og til að kosta ferð Per Arlock til íslands.
  1990 styrkur úr Verðlaunasjóði Alfreds Benzon.
  1989 og nokkurn veginn árlega síðan, styrkir úr Vísindasjóði og Rannsóknasjóði Háskóla Íslands.
  1993 og 1994, styrkir úr NorFA til samvinnu við B. Wohlfart og P. Arlock í Lundi.

Andmælandi við doktorsvarnir og seta í MS og doktorsnefndum:

1)  Aðalandmælandi (fakultetsopponent) við doktorsvörn Per Arlock við Zoofysiologiska Institutionen í Lundi vorið 1980.
Heiti ritgerðar: "Electrophysiological studies on mammalian cardiac muscle. Analysis of the kinetics of the upstroke of the action potential and effects of some neuroleptics, tricyclic antidepressants and ß-adrenoceptor agonists.
2)  Aðalandmælandi (fakultetsopponent) við doktorsvörn A. Rauf Khan við Farmakologiska Institutionen í Lundi vorið 1981.
 Heiti ritgerðar: "A study of excitation-contraction coupling in skeletal muscle fibres with special reference to drug action".
3)  Aðalandmælandi við  doktorsvörn Þóris D. Björnssonar við læknadeild Háskóla Íslands 14. nóvember 1987.
Heiti ritgerðar: "Clinical pharmacology of heparin: Studies on its pharmacokinetics and pharmacodynamics."
4)  Seta í fjölmörgum MS og doktorsnefndum við Háskóla Íslands. Prófari í mörgum MS prófum við HÍ.

Samvinna:

  Á árunum 1974-1982 var veruleg samvinna við Björn Wohlfart og Paul Edman í Lundi.
  Síðan 1982 hefur verið nokkur samvinna við Albrecht Ziegler í Kiel.
  Á árunum 1984-1986 var samvinna við Þorstein Loftsson, Lyfjafræði lyfsala H.Í.
  Síðan vorið 1987 var tekin upp á ný samvinna við Björn Wohlfart og Per Arlock í Lundi, Svíþjóð sem stóð til 1997.
  Síðan 1998 hefur  verið samvinna um faraldsfræðilegar rannsóknir við Hjartavernd (Guðmundur Þorgeirsson o.fl.) og J.C.M. Witteman próf. í faraldsfræði og líftölfræði við Erasmus háskólann í Rotterdam.

Félagsmál og stjórnun:

  Í ritstjórn Læknanemans 1966.
  Formaður Félags læknanema 1967.
  Á vegum læknadeildar:
            Kennslunefnd 1975-1976
            Í stjórn Raunvísindadeildar Vísindasjóðs 1976-1981
                        Vísindanefnd 1992-1996, formaður 1994-1996
            Í deildarráði frá 1996 til 1998
            Í kennsluráði frá 2003
Í rannsóknanámsnefnd læknadeildar 1997-2000.
            Ýmsar aðrar nefndir
  Á vegum Læknafélaganna:
            Bókasafnsnefnd
            Fræðslunefnd 1983 - 1987
            Orðanefnd síðan 1984
  Umsjón með verklegu og fræðilegu námskeiði í notkun smátölva, 24.-25. september 1983 (hluti af haustnámskeiði læknafélaganna).
  Í undirbúningsnefnd "VII Congress of the International Society for Heart Research, Reykjavík, 22-25 June 1986".
  Formaður Lyfjafræðafélags Íslands frá stofnun þess í apríl 1987 til 1998.
  Formaður undirbúningsnefndar „XXXIV Nordic Meeting of Pharmacology, Toxicology and Clinical Pharmacology, Reykjavík, June 26-28th, 1989“.
  Í vísindaráði Krabbameinsfélags Íslands, 1998-2001 og formaður þess 1999-2001.

•  Í stýrihóp landlæknis um klíniskar leiðbeiningar síðan 2000.
•  Í læknaráði síðan 1998.

•  Í stjórn Endurmenntunar Háskóla Íslands 2002 til 2005.


Meðlimur í eftirfarandi félögum:

  Læknafélag Íslands
  Hið íslenska Náttúrufræðifélag
  Deutsche Pharmakologische Gesellschaft
  Hjartasjúkdómafélag íslenskra lækna
  Lífefnafræðifélag Íslands
  Lyfjafræðafélag Íslands.


Magnús Jóhannsson  15.01.2008