|
Ný síðaJæja Hi.is/~jja kveður. EN! Gleðin heldur áfram eftir nokkra daga á nýrri síðu. http://www.johannjokull.net Fylgist með og breytið linkunum ykkar, mother fokkers. Nefndin! 12:32 | link | @ test12:28 | link | @ EfnahagsmálÍ síðustu viku fékk ég símtal um miðja nótt frá Alþingi þar sem ég var beðinn um að finna lausn á efnahagsmálum. Ég fékk strax þá hugmynd að bjóða ríkisstjórninni í pottpartý heim til mín til að fara yfir hlutina. Ég hef heyrt að flestir séu mjög spenntir og ætla sumir að kaupa ný sundföt fyrir fundinn. 11:17 | link | @ EfnahagsmálÍ síðustu viku fékk ég símtal um miðja nótt frá Alþingi og þar sem ég var beðinn um að finna lausn á efnahagsmálum. Ég fékk strax hugmynd um að bjóða ríkisstjórninni í pottpartý heim til mín til að fara yfir hlutina. Flestir ráðherrarnir er mjög spenntir og ætla sumir að kaupa ný sundföt fyrir fundinn. 18:21 | link | @ Efnahagsmál Í síðustu viku fékk ég símtal um miðja nótt frá Alþingi þar sem ég var beðinn um að finna lausn á efnahagsmálum þjóðarinnar. Ég stakk strax upp á því að ríkisstjórnin myndi hittast í pottapartý. Flestir ráðherrar eru mjög spenntir fyrir þessari hugmynd og ég mun líklega fá mér ný sundföt fyrir fundinn. 18:06 | link | @ 24Blaðið 24 Stundir hefur ekki borist til mín í langan tíma. Ég hef reynt að hringja og kvarta en næ engu sambandi. 13:07 | link | @ QaseEr ég sá eini sem saknar Amal Rún Qase? 10:15 | link | @ LandhelgiÞað er löngu orðið tímabært á að færa landhelgina út í þúsund mílur. 09:47 | link | @ GeðshræringÉg hef fylgst náið með móður minni síðan hún reyndi að gleypa símaskrá í geðshræringu. 10:04 | link | @ Lítil salaÁ horni Laugavegs og Barónsstígs hef ég staðið snyrtilega klæddur og með rakspíra í þrjár vikur á án þess að selja nokkuð. Það er bara eins og fólk sé ekki að kaupa sér vændi í kreppunni. 12:51 | link | @ SvörÉg vil fá skýr svör. Hver er munurinn á EES, ESB og BSÍ? 09:30 | link | @ Ekki afturÉg mætti á dansæfingu hjá Íslenska dansflokknum um daginn. Ég var beðinn um að koma ekki aftur. 09:38 | link | @ Sláandi niðurstaðaÍ vor var haft samband við mig og ég var beðinn um að skrifa kökubók Hagkaups sem á að koma út fyrir jólin. Síðan þá er ég búinn að sitja upp á Þjóðskjalasafni Íslands og fara í gegnum tvöþúsund kassa af skjölum. Niðurstaðan er sláandi og á eftir að valda usla í jólabókaflóðinu. 17:09 | link | @ Nýr nágranniPabbi varð sérstaklega spenntur þegar fréttist að Svarthöfði væri fluttur inn í íbúðina á móti. Hann missti þó fljótt áhugann eftir að Svarthöfði hjó af honum höndina á fylleríi. 12:12 | link | @ HöftÞað eru gjaldeyrishöft í landinu og ég er með ellefu þúsund gervipíkur fastar í tollinum. 10:54 | link | @ StyttingÉg hef heyrt að ríkið ætli að stytta Glitnismaraþonið. 09:19 | link | @ Merki (Bjöggi best)Það er algengur misskilningur að Batman merkið sé hluti af stjörnumerkjunum. 15:46 | link | @ HúðAppelsínuhúð hefur ekkert með ávexti að gera og er því ekki góð út í ávaxtasalat. Mun betra er að steikja hana upp úr raspi. 17:40 | link | @ HetjurMér finnst ekki síðri hetjur þetta lið sem er að keppa á þessum Ólympíuleikum þroskaheftra. 16:16 | link | @ SkokkÉg hef ákveðið að hætta öllu skokki. Hér eftir ætla ég að einbeita mér eingöngu að trimmi. 17:30 | link | @ Skaðleg fróun?Sem unglingur sagði móðir mín mér að óhófleg sjálfsfróun gæti haft skaðleg áhrif á heyrnina. Undanfarið hef ég talað við marga lækna en enginn þeirra vill meina að fróun sé ástæða þess að ég sé hættur að heyra sérhljóða. 13:42 | link | @ LandnámÞróun mannsins var mjög mikilvægur þáttur fyrir landnám Íslands þegar fyrsti Íslendingurinn kom hingað syndandi í eldgamladaga sem fiskur og skreið á land. Heimildir segja að þetta hafi verið ýsa sem seinna gerðist bóndi í Borgarfirði. 10:44 | link | @ StaðurEinn fallegasti staður á Íslandi er án efa Hvalfjarðargöngin en þar er að finna stórbrotna náttúru í þessum lengsta helli landsins sem fannst seint á síðustu öld. 13:49 | link | @ VandamálSamkynhneigð er samfélagslegt vandamál sem ekki verður leyst nema með þjóðarátaki. 11:39 | link | @ Einstakar myndirÉg náði alveg einstökum myndum af flugeldasýningu. Hafið samband ef þið viljið stækkað eintak. 16:20 | link | @ SjósundÉg var að ganga út á Gróttu um daginn í dásamlegu veðri. Ég naut náttúrunnar, hlustaði á fuglana og sá meira að segja mann í sjósundi sem veifaði til mín, ég veifaði til baka. Seinna um kvöldið horfði ég á frétt um sjómann sem drukknaði fyrir utan Gróttu. 16:42 | link | @ GróðurhúsaáhrifTil að koma í veg fyrir gróðurhúsaáhrif þarf meðal annars að draga úr losun metans frá beljum og þá er ég ekki bara að tala um femínista. 11:01 | link | @ OdfellowMeðlimir Oddfellow tala um hvorn annan sem bræður og systur, enda eru þeir flestir blökkumenn. 13:53 | link | @ ÞakkláturÁ hverjum degi þakka ég guði fyrir að fá að nota munninn til að ropa en ekki prumpa. 10:28 | link | @ BakkaKonur gefa oft eftir í rökræðum því þær hafa verið gagnrýndar fyrir að kunna ekki að bakka. 11:29 | link | @ Bættur aðgangurAðgangur að opinberum stofnunum er alltaf að verða betri sem er mjög mikilvægt svo allt þetta þroskahefta fólk sem starfar við að svara í símann á þessum stöðum komist í vinnuna. 15:36 | link | @ SpeltNóg af spelti og Bylgjan verður á svæðinu. Konur látið sjá ykkur. 16:13 | link | @ Góð ráðÉg fékk góð ráð hvernig krydda mætti kynlífið. Nú vantar mig góð ráð hvernig losa á hunang úr skapahárum. 14:36 | link | @ Góð hugmyndÉg labbaði í bíó í gær. Mér fannst það mjög góð hugmynd eða þar til ég komst að því að þetta var bílabíó. 13:45 | link | @ Ótrúlegur steinnÉg var að ganga út á Seltjarnarnesi og var að velta fyrir mér hlutverki konunnar í nútímanum þegar ég fann stein. Sérkennileg lögun og áferð steinsins var eitthvað sem tók öllu fram sem ég hef áður séð í náttúrunni. Þennan stein varð ég að láta greina og það ekki seinna en strax. Ég tók því leigubíl til móðursystur minnar sem er jarðfræðingur og býr í Bólstaðarhlíð. Móðursystir mín benti mér á að þessi steinn væri gangstéttarhella. 10:59 | link | @ ÁhyggjuefniÉg tek ekki strætó enda skil ég illa leiðakerfið. Sem er reyndar áhyggjuefni fyrir mig þar sem börn, gamalmenni og þroskaheftir virðast ekki eiga í neinum vandræðum með að skilja það. 16:53 | link | @ EvróvisionEvróvision er eins og prumpa. Fyrst spennist fólk upp af eftirvæntingu en fljótlega sitja allir eftir í skítafýlu. 14:24 | link | @ HeimsóknÉg heimsótti Sólheima um helgina og fékk að klappa nokkrum vistmönnum. Það kom á óvart hvað þeir eru spakir. Einn vistmaður, kona á miðjum aldri með einstakan áhuga á þjóðfánum, át meira að segja beint úr lófanum á mér. 23:32 | link | @ Engar athugasemdirÍ heimi knattspyrnunnar gerir enginn athugasemd þó svo það séu menn á hliðarlínunni klæddir í jakkaföt og skíðaúlpu. 10:33 | link | @ SuðurlandÉg hef ferðast um suðurlandið, keyrt í marga klukkutíma í gegnum endalausar sandbreiður. Og ég velti því fyrir mér hvað er svona æðislegt við að vera ungfrú suðurland? Er það kannski jafn spennandi og að vera ungfrú miðhálendi? 10:34 | link | @ AðgangurMér finnst merkilegt hversu greiðan aðgang hommar hafa að fjölmiðlum. Á heiðarlegt fólk bara að láta þetta ástand yfir sig ganga? 09:26 | link | @ Þorp út á landiFasteignaverð í þorpum út á landi er mjög hátt vegna þess að tæknilega eru öll hús staðsett í miðbænum. 13:46 | link | @ ÓttiÉg hef ákveðið að hætta að labba niður Laugaveginn af ótta við að stíga á bananahýði. Héðan í frá mun ég fara allar mínar ferðir á vörulyftara, sem er mjög nice. Og þá er ég ekki að tala um borgina Nice í Frakklandi. 22:41 | link | @ LöggurÞað getur oft verið mikilvægt að hafa konur í löggunni, t.d þegar standa þarf heiðursvörð. 10:35 | link | @ KrónaKrónan er fallin. Ég get loksins farið að flytja út hrásalat.
00:24 | link | @ RauttVinkona mín eignaðist einu sinni rauðhært barn, hún fílaði það aldrei. 12:49 | link | @ ListiÁ lista yfir tíu launahæstu konur landsins eru meðal annars þrír karlmenn og eitt skrifborð. 12:42 | link | @ SportAfhverju er aldrei talað um sportbíla sem íþróttabíla? 12:48 | link | @ TrúnaðurÉg var búinn að vinna þarna í þrjá mánuði áður en mér var bent á að það ætti ekki að henda tyggjó í tunnuna merkta Eyðing trúnaðarskjala. 16:12 | link | @ Yfir meðaltaliÞó svo móðir mín hafi drukkið illa á meðgöngunni þá finnst mér ekki rétt að ganga út frá því að ég sé þroskaheftur. Ég lét athuga litningana mína og þeir eru jafn margir og hjá venjulegu fólki, meira að segja aðeins fleiri. 09:06 | link | @ MikilvægtÞað er nauðsynlegt að fallegt fólk eins og Bjössi í WorldClass og Linda Pé dæmi fegurðarsamkeppnir. Ljótt fólk skilur nefnilega ekki mikilvægi þess að ganga um í spariskóm og sundfötum. 11:13 | link | @ HressirHommar eru alltaf rosalega hressir eða rétt á meðan þeir eru ekki í ástarsorg. 17:05 | link | @ FólkÞað er ekki alltaf hægt að ganga út frá því að heyrnarlaust fólk sé líka þroskaheft. 11:32 | link | @ LöggurSkemmtanalöggur nota dauðan tíma á mánudögum í skýrslugerð.
23:50 | link | @ ÁkvörðunÁ hvaða fundi var ákveðið að nauðsynlegt væri að framleiða gegnsæjar skyrtur á karlmenn? 16:16 | link | @ Nýjar upplýsingarÞar sem ég sat með nefið ofan í forsíðu Morgunblaðsins og borðaði gulrótarköku gerði ég skyndilega ótrúlega uppgötvun sem mér hafði aldrei dottið í hug áður. Gat þetta verið? Ég trúði vart mínum eigin augum fyrr en ég hafði vakið móður mína og sýnt henni Morgunblaðið og þessar ótrúlegu niðurstöður. Hún var strax sammála mér að þarna væri ég kominn með upplýsingar sem gætu varpað nýju ljósi á Geirfinnsmálið. Þetta krafðist rannsóknar og það ekki seinna en strax. Ég hringdi mig inn veikan í vinnunni, tók sjónvarpið úr sambandi og læsti mig inni í herbergi með harðfisk og Sinalco. Í heila viku vann ég stíft í málinu, hringdi mörg símtöl og skrifaði marga minnismiða. Síðan hafði ég samband við Morgunblaðið og sagði þeim frá þessum ótrúlegu upplýsingum. Þeir hlógu að mér og bentu á að þetta hefði verið aprílgabb. Ég og móðir mín höfum skoðað þessar upplýsingar betur og sjáum að þær gætu samt verið mikilvægar í rannsókn á Hafskipsmálinu. 16:08 | link | @ GlæsibæMaðurinn sem stofnaði Glæsibæ hefur aldrei hlotið þá virðingu sem hann á skilið. 10:51 | link | @ Jákvæð uppskeraGott árferði í sumar hafði jákvæð áhrif á alla uppskeru enda eru Freyju möndlur óvenju stórar í ár. 11:37 | link | @ HlaupHlaupár gera mig rosalega stressaðan. 16:22 | link | @ UndirbúningurÉg varð mjög skelkaður þegar nýi nágranninn okkar, þrifaleg kona á miðjum aldri, kýldi móður mína í andlitið og át öll sumarblómin í garðinum. Seinna skildi ég hana betur þegar ég frétti að hún var að undirbúa sig undir hlutverk í bíómynd. 16:38 | link | @ Utan af landiFólk utan af landi er mun hæfara til að aka um í snjó. Fólk utan af landi er einnig mun líklegra til að eiga samræði við kindur. 20:01 | link | @ JólagjafirÍ fyrra föndraði ég allar jólagjafir sjálfur. Í ár er ég að hugsa um að stela þeim. 15:16 | link | @ BaktalRannsóknir mínar á Survivor hafa leitt í ljós að of mikið baktal getur valdið næringarskorti og jafnvel átröskun. 09:33 | link | @ KrónanHvað verður um Krónuna ef Ísland gengur í Evrópusambandið? Ætla þeir að breyta búðinni í Evruna? 14:01 | link | @ Ekki sleikjaMér var vísað úr Listasafni Íslands um helgina. Leiðinda misskilningur vil ég meina. En það má víst ekki sleikja málverkin. 09:59 | link | @ SkilaboðÞað tekur magann smá tíma að senda heilanum skilaboð um að hann sé orðinn saddur og þurfi ekki meiri mat. Þetta er eitthvað sem feitt fólk á erfitt með að skilja enda er það ekki með heila. 13:14 | link | @ MörgæsirÉg var að ganga upp Laugaveginn þegar ég lenti í slagsmálum við tvær fullar mörgæsir. Þær voru víst að fara útskrifast úr menntaskóla. 11:28 | link | @ Á sama tímaÁ sama tíma og ég sit tárvotur upp í sófa yfir heimildamynd um langveik börn eru hommar í sleik út um alla Öskjuhlíð. 15:08 | link | @ EggHúsmæður athugið, tilboð á eggjum. Ekki bara í jólabaksturinn. 10:43 | link | @ Kafli 1Jarðarbúar vöknuðu upp við vondan draum þegar þeir heyrðu fréttirnar. Sólkerfið hafði bilað í nótt og jörðin sveif stefnulaust út í eilífðina. Áhrifin létu ekki á sér standa og náttúrulögmálin fóru fljótlega úr böndunum. Flóð varð fjara og fjara varð flóð. Nótt varð dagur og dagur varð nótt. Hommar urðu lesbíur og... Ég tók sopa af kaffinu og horfði á tölvuskjáinn. Eftir stutta umhugsun ákvað ég að bíða aðeins með að skrifa vísindaskáldsögu. 14:05 | link | @ HaraldurHaraldur var elskaður. Flestir fengu þó leið á honum eftir að hann reyndi að troða hamstri inn í gervipíku. 16:47 | link | @ PásaLíf listamanna er ein löng reykpása. 11:15 | link | @ HúsráðKreistu hálfa sítrónu í augun á þér og þú gleymir öllum fjárhagsáhyggjum, um stund. 09:25 | link | @ ListÉg var ekki eldri en fimm ára þegar móðir mín kenndi mér listina að borða upp af gólfinu. 10:47 | link | @ Einfaldar reglurÉg sat einbeittur og las mig til um tíðarhringinn þegar bókasafnsvörðurinn, þrifaleg kona á miðjum aldri, kom skyndilega upp að mér. Ég hef alla tíð óttast þennan bókasafnsvörð enda á hún erfitt með skapið í sér. Eitt sinn sá ég hana hella sér yfir mjög vandaða konu í pelsi, kallaði hana tussu og manninn hennar karlhóru. Um stund stóð hún yfir mér og starði á mig þar sem ég hafði komið mér vel fyrir í sófa við bókahillu merkta kynjafræði. Ég fann hvernig ég svitnaði í lófunum á meðan ég beið eftir að hún myndi segja eitthvað við mig. Af svipnum að dæma virtist hún ætla vísa mér út. Loks hvíslaði hún rólega að gestir safnsins yrðu að vera í fötum og bað mig að klæða mig aftur í buxurnar. Hún sagði að þetta væru bara einfaldar reglur. 15:30 | link | @ FatafellurÞað er mikilvægt að koma ekki fram við konur eins og fatafellur, einkadans er svo hrikalega dýr. 14:45 | link | @ SmokkarStærsta vandamálið við smokka er að troða pungnum inn í þá. 15:16 | link | @ Yfirfull sálÉg hætti að sjá í fókus þegar augun fylltust af vatni sem síðan féll líkt og snjóflóð niður hlíðar kinna minna. Ekki var hægt að reisa varnargarða í augnbotninum þegar skriðan hafði greitt atkvæði sitt um að leggja af stað. Það var of seint. Mér varð kalt við tilhugsunina hvernig þessi tilfinning mætti eins og óboðin lest inn í líf mitt og þaut stystu leið í gegnum hjartað. Áður en ég vissi af horfði ég á eftir síðasta vagninum án þess að vita hvort mér hefði verið boðið far eða ekki. Þjakaður af geðshræringu fann ég hvernig fátæk sálin varð yfirfull af sorg. Ó, hve sárt er að flá sína fegurstu þrá var hugsun sem endurtók sig eins og lag sem hreiðrar um sig í heilanum. Ég féll eins og laufblað af grein er þú kvaddir ástin mín ein. Síðan sat ég óvígur eftir án allra snertinga og með áberandi þögn í eyrunum. Ég fylgdist með hvernig spegilmyndin bjagaðist þegar snjóflóðið hafnaði í kaffibollanum, dropa fyrir dropa. Ég veit ekki hvað það er en ég verð alltaf svolítið meyr þegar móðir mín kveður á morgnana og fer til vinnu. 14:14 | link | @ AugnsambandÉg forðast það að ná augnsambandi við smámælt fólk. Maður veit aldrei hvenær það snappar. 08:59 | link | @ MikilvægtÞað er mjög mikilvægt að rugla ekki saman munnskoli og rakspíra. 12:58 | link | @ BlökkukonurFjölmiðlar taka reglulega viðtöl við blökkukonur í jafnréttisbaráttu. Eins og þær eigi einhvern séns. 15:37 | link | @ KrónaÉg fór í atvinnuviðtal hjá utanríkisráðuneytinu um daginn. Fékk ekki starfið. Fékk engar skýringar. Kannski var það vegna þess að ég var klæddur sem aukakróna. Ég veit það ekki. 08:52 | link | @ LesbíurÞað er ekki einfalt að skjóta lesbíur, þær eru svo styggar. 08:54 | link | @ Grunur um bilunÉg skildi lítið í þessu enda ný búinn að kaupa græjurnar. Ekkert heyrðist þó svo ég væri búinn að hækka í botn, tékka á öllum snúrum og lemja í sjónvarpið. Þetta leit ekki vel út, liðið mitt að fara spila og ekkert hljóð í tækinu. Það var því mikill léttir þegar ég fattaði að heimabíóið var ekki að klikka heldur var ég að horfa á einnar mínútu þögn fyrir leikinn. 13:00 | link | @ Enga neikvæðniÉg ætla ekki að vera neikvæður. Þoli ekki fólk sem er neikvætt. En mér finnst að stjórnmálamenn mættu hoppa upp í rassgatið á sér. 15:42 | link | @ Viðkvæm móðirFálki Frónar grípur með knífskörpum klóm sínum um eitraða örina sem lagði hann vesæl að velli og rykkir ruslinu úr hágöfgu hjarta sínu og breiðir út brandhvassa vængina og skýst upp til skýja! Fálkinn flýgur á ný! Föðurland vort lifir! Landið er aftur orðið fagurt og frítt og fannhvítir jöklanna tindar blika eins og stjörnur á himnafestingunni. Öllum vöknar um hvarma er þeir líta óblendnum aðdáunaraugum á stórbrotna fósturjörð sína. Ég leit upp úr Morgunblaðinu og á móður mína þar sem hún stóð út á miðju eldhúsgólfinu og æfði sig fyrir ljóðakvöld. Um stund var ég að hugsa að biðja hana um að gefa mér frið til að lesa íþróttasíðurnar og klára morgunkaffið. En ég gerði það ekki. Hún færi líklega að gráta, hún er svo viðkvæm þessi elska. 23:41 | link | @ SambandiðÉg hef rætt við marga homma sem telja að Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið. 15:56 | link | @ AugaÉg var að ganga niður Bankastrætið þegar myndarleg stelpa gaf mér auga. Ég geymi það í formalíni á skrifborðinu mínu. 09:28 | link | @ AfiÉg var búinn að labba um alla Hrafnistu að leita að afa mínum þegar ég mundi að hann er löngu dáinn. 01:44 | link | @ Samviskusamur alkóhólistiMeð köldum lófa skynjum við hita, í myrkri sjáum við ljós, í þögn heyrum við hljóð, með hlekkjum fæðist hugmyndin um frelsi og án eymdar væri engin hamingja. Ég sat hljóður og tárvotur á meðan ég hlustaði einbeittur á samviskusama alkóhólistann útskýra hvernig skynjun hugans byggðist á andstæðum. Samviskusami alkóhólistinn hafði búið í blokkinni lengur en aðrir gátu munað. Alkóhólistinn var vel að sér í heimspekilegum hugsunum og sagði oft langar dæmisögur um lífsins leiðir. Þrátt fyrir að vera oftast fullur stóð hann við sitt þegar kom að húsfélaginu. Hann lá stundum í blackouti á húsfundum en mætti aldrei of seint og skilaði alltaf af sér fundagerð. Stundum ryksugaði hann stigaganginn blindfullur en gleymdi aldrei að taka sameignina. Það kom fyrir að hann ældi í ruslalúguna en þá þreif hann það jafnóðum eftir sig. Samviskusami alkóhólistinn bar mikla virðingu fyrir garðrækt og vökvaði aldrei blómin ef hann hafði bragðað eitthvað sterkara en bjór eða léttvín. Öllum þótti vænt um samviskusama alkóhólistann, þar á meðal mér. Ég hefði gjarnan viljað sitja þarna lengur til að hlusta á hvernig græðgi væri móðir þjáninganna, hvernig vonin væri líklega það besta sem maðurinn bæri í brjósti eða hvernig leitin að hamingjunni ætti sér enga endastöð. En ég mátti ekki vera að því, ég var að verða of seinn í spinning. 11:19 | link | @ 24Ég var búinn með fyrstu fimmtán þættina af 24 þegar ég fattaði að ég var að horfa á Matlock. 00:32 | link | @ |
|||||||