Stóri strumpurinn - Arnar

Stóri strumpurinn í Strumpasmára heitir Arnar Hauksson og er þriggja ára, fæddur 26. mars 2002.
Á daginn leikur hann sér við krakkana í leikskólanum Arnarsmára. Hann er voða stilltur strákur og tekur almennt lífinu með ró. Fram eftir aldri hossaði hann sér bara um á rassinum þar til í sumarfríi á Portúgal, rúmlega 16 mánaða. Þá varð nefnilega á vegi hans stétt sem hann vildi komast yfir en var heldur gróf til að hossa sér yfir á sundskýlunni einni saman, svo strumpurinn stóð bara upp og labbaði af stað.
Hann er mikill matmaður, borðar nánast allt og kann sérstaklega vel að meta sparimat. Hann er líka náttúrukall, finnst gaman að leika úti og fara í ferðalög. Lína langsokkur hefur lengi vel verið í miklu uppáhaldi en aðrir góðir félagar eru Spiderman, Mikki refur og veiðimaðurinn.

Litli strumpurinn - Bjarni

Litli strumpurinn á heimilinu heitir Bjarni Hauksson og kom í heiminn þann 24. september 2004. Hann fæddist í Hreiðrinu á LSH og var bara snöggur í heiminn.
Hann er mikill fjörkálfur, alltaf að grallarast eitthvað og er líka ansi duglegur að hrella stóra bróður sinn. Hann er ekki bara fjörkálfur, heldur líka mjólkurkálfur og er eiginlega ekki viðræðuhæfur á morgnana fyrir hann er kominn með fullan maga af volgri mjólk. Ekki er verra að fá piparköku með, því sykurgrís er hann líka. Bjarni hefur mjög ákveðnar skoðanir á því hvað hentar honum að borða og vill alltaf vera viss um að hann sé örugglega að fá allt það sama og hinir á diskinn sinn. Og ólíkt mulningsvélinni honum Arnari borðar hann ekki hvað sem er og ef bitinn þóknast honum ekki er hann bara látinn detta út aftur.
Bjarni eyðir deginum á leikskólanum Lundi þar til hann verður nógu stór til að fara á Arnarsmára.

Yfirstrumpurinn

Yfirstrumpurinn og pabbinn í Strumpasmára heitir Haukur C. Benediktsson. Á daginn breytist hann í virðulegan hagfræðing sem situr á rassinum allan daginn og reiknar og skrifar eða lektor sem reynir að troða visku í hausinn á háskólanemum.

Mömmustrumpurinn

Mömmustrumpurinn heitir Hjördís Sigurðardóttir. Hún er verkfræðingur og vinnur við að forrita, auk þess sem hún gefur hinum strumpunum stundum mat og þvær jafnvel fötin þeirra. Mömmustrumpinum finnst rosalega gott að fara sund þegar litlu strumparnir eru farnir að sofa.


Verið nú ófeimin við að skilja eftir ummæli og kvitta í gestabókina!