Reglugerð um Tannlæknastofnun
Ársskýrsla 2003-2004 |
Tannlækningastofnun er rannsókna-, fræðslu- og þjónustustofnun í tannlæknisfræði og skyldum greinum sem stundaðar eru við tannlæknadeild.
Stofnunin er til húsa í Læknagarði, Vatnsmýrarvegi 16
101 Reykjavík. Sími: 525-4850.
Tölvupóstur: tj@hi.is |
Tannlækningastofnun tók til starfa 1997 og var reglugerð um hana samþykkt í Háskólaráði á því sama ári. Í stuttu máli má segja að Tannlækningastofnun sé rannsókna-, fræðslu- og þjónustustofnun í tannlæknisfræði og skyldum greinum sem stundaðar eru við tannlæknadeild. Stofnunin er ung og í mótun, en helstu þættir starfseminnar eru nú þessir:
- 1. Rannsóknir sem stundaðar eru af starfsmönnum tannlæknadeildar.
2. Árlegur fundur um rannsóknir í tannlækningum þar sem kynntar eru rannsóknir og rannsóknaáætlanir starfsmanna stofnunarinnar og annarra á sviði tannlæknisfræði.
3. Endurmenntunarnámskeið og árleg röð fyrirlestra fyrir tannlækna.
4. Álitsgerðir sem unnar eru af sérfræðingum stofnunarinnar fyrir opinbera aðila, einkum landlækni og úrskurðarnefnd almannatrygginga.
|
|