er nefnt að eini vettvangurinn sem samkynhneigðir
stúdentar hafi haft til að kynnast hafi verið skemmtistaðirnir og að samkynhneigðir
stúdentar eigi sér ákveðin sameiginleg áhugamál sem séu ekki endilega áhugamál
fólks í almennum samtökum samkynhneigðra.
Í viðtali við Fréttabréfið segir formaður félagsins Alfreð Hauksson um
kveikjuna að stofnun Félags samkynhneigðra stúdenta: Upphafið var í raun
sýning Felix Bergssonar í Íslensku óperunni Hinn fullkomni jafningi" en
unnusti hans Baldur Þórhallsson kennir við stjórnmálafræðiskor. Samkynhneigðir
innan Háskólans settu sig í samband við hann og upp úr því var ákveðið að
hittast á fundum til að ræða málefni samkynhneigðra. Yfir 20 stúdentar mættu á
fundina þrátt fyrir að ekkert hafi verið auglýst. Á fundunum varð til hugmyndin um
að stofna hagsmunasamtök og stuðningshóp samkynhneigðra við Háskólann."
Aðspurður um það hvort aðstæður samkynhneigðra í Háskóla Íslands séu á
einhvern hátt frábrugðnar því sem þekkist annarstaðar í þjóðfélaginu segir
Alfreð: Nei, í rauninni ekki en það eru viss atriði sem félagið vill vekja
máls á eins og t.d. það að þunglyndi sem oft fylgir því að koma út úr
skápnum" getur skýrt brotfall ákveðins hluta nemenda úr námi því algengt er
að fólk viðurkenni kynhneigð sína fyrst á háskólaárunum." Félag
samkynhneigðra stúdenta getur aðstoðað þennan hóp nemenda og einnig er mikilvægt
að starfsmenn Námsráðgjafar Háskólans séu meðvitaðir um þau vandamál sem þessi
hópur á við að stríða og geti þá vísað á félagið til ráðgjafar."
Samkvæmt rannsóknum má gera ráð fyrir að innan Hí séu um 200-600
samkynhneigðir stúdentar. Félagið er opið öllum sem láta sig málefni
samkynhneigðra varða jafnt samkynhneigða og tvíkynhneigða sem þá sem óöruggir eru
með kynhneigð sína.
HBS