- Vefsíður nemenda

- Eldri fréttir

- Geymt

sunnudagur, apríl 23

Sæl veriði gott fólk

Við hér í stjórninni sjáum síðasta prófdag í hillingum eins og eflaust þið öll hin og erum búnar að vera að spá og spöglera í hvað væri hægt að gerasniðugt til að fagna próflokum.

Nú eins og yfirleitt gerist þegar miklirhugsuðir koma saman, urðu til nokkrar bráðsnjallar hugmyndir.Þetta er semsagt útkoman:

15. MAÍ: klárum við flest á öðru ári síðasta prófið. Þó að þið sem eruðá 1. ári klárið fyrr, vonum við að þið séuð til í að vera með... hafiðinokkuð betra að gera? ;)

BLÁA LÓNIÐ:

Hugmyndin er nota sjóðinn til að splæsa á þá sem hafa áhuga. Ætlum að fara upp úr 2-3, bílar eða rúta, allt eftir hversu margir hafaáhuga. Og eitthvað er maður að heyra um Bláa-Lóns kokteila jafnvel.

TAPAS:

ætlum að reyna að greiða niður kostnað á 5 rétta tapas-dinner,hversu mikið fer enn á ný eftir því hversu margir ætla sér að vera með.Við auglýsum síðan eftir hugmyndum og tillögum um hvað fólk vill gera umkvöldið.

Ef einhver er til í að halda partý þá yrði það alveg hreintstórmagnað framlag.

Til þess að hægt sé að panta borð og rútu og svoleiðis viljum við biðja þá sem hafa áhuga á að vera með að skrá sig með því að svara þessum pósti og þá sem allra allra fyrst.

Þúsund þakkir,

ykkar einlæga stjórn.



Hola buena gente,

Nosotras en la junta ya estamos soñando con el último día de los exámenesigual que vosotros todos, supongo.

Nos hemos roto las cabezas pensando en qué hacer para celebrar los fines de los exámenes y el resultado ha sidoeste plan genial:

15 de mayo es el último día de los exámenes para la mayoría de nosotros así que sobre las 2 ó 3 hemos pensado irnos todos a:

BLÁA LÓNIÐ (la LagunaAzul). La intención es utilizar el dinero que nos queda de nuestro fondopara pagar la entrada para todos. Si alquilamos un autobús o si vamos encoches depende del número de la gente que esté interesada en ir connosotros.

Luego, por la noche, hemos pensado ir a TAPAS para cenar.

Otra vez (yaque somos muy generosas ;) ) intentaremos bajar el costo con el fondo. Por consiguiente, el costo de la cena dependerá del número de la gente que quiera asistir.

Así que rogamos que los que estén interesados en celebrar los fines de los exámenes con nosotros, por favor que se apunten cuanto antes respondiendo a este mail.

Además, agradecemos cualquier sugerencia sobre qué hacer después de la cena y sobre todo le estaremos agradecidas al quien esté dispuestos a ofrecer su casa para hacer una fiesta.

Otra vez, os recuerdo apuntarse cuanto antes para que podamos hacer los preparativos necesarios.

Muchísimas gracias.

Cordialmente,

vuestra Junta.

miðvikudagur, apríl 5

Hæhæ

Mig langaði bara að segja ykkur frá næstu salsa æfingu á sunnudaginn kemur, þann 9. apríl kl. 14:00. Hún er að venju ykkur að kostnaðarlausu og fer fram í Karatefélaginu Þórshamri, Brautarholti 22.

Þar verður hægt að nálgast geisladiska.



Tilkynning um æfinguna er á heimasíðunni, ef ykkur langar að benda fleirum á.

Sjáumst,Edda



Hola!

Just wanted to tell you about the next free salsa training, Sunday April 9th at 14:00. It will take place at Thorshamar, Karate club, Brautarholt 22. T

here is an announcement at the website, in case you would like to give a tip to your friend about it.

See ya,Edda

þriðjudagur, mars 21

Kæru stúdentar!!

Kæru stúdentar!!

Málþingið Staða og stefna í erlendum tungumálum verður haldið
miðvikudaginn 22. mars næstkomandi í hátíðarsal HÍ. Málþingið er á vegum
félags stúdenta við Hugvísindadeild og styrkt af Stofnun Vigdísar
Finnbogadóttur.
Málþingið hefst kl. 10.30 og er til kl. 16.15. Frú Vigdís Finnbogadóttir
mun opna þingið, en fundarstjóri er Torfi H. Tulinius.

Mikil umræða hefur verið um tungumálakunnáttu Íslendinga upp á síðkastið
og hefur sú umræða snert marga þætti í því samhengi. Málþinginu verður
skipt upp í fjögur viðfangsefni sem koma inn á þessa umræðu en þau eru:
Tungumálakennsla í framhaldsskólum, tungumálakennsla í Háskóla Íslands,
tvítyngi og mikilvægi þýðinga fyrir atvinnulífið.

Dagskrá málþingsins er að finna á www.vigdis.hi.is og hvetjum við alla
nemendur til þess að mæta og sýna stuðning í verki.

Virðingarfyllst,

Félag stúdenta við Hugvísindadeild
©2005 Félag Spænskunema við Háskóla Íslands