|
[25.04.09]
Ný stjórn Fróða kosin!
Ný stjórn Fróða var kosin á aðalfundi í gær.
Ný stjórn er:
Ágústa Hrund Þorgeirsdóttir formaður, hin nýja drottning Fróða
Rúnar Már Þráinsson er nýji meðstjórnandinn
Ólöf Vignisdóttir tók við af Óla sem gjaldkeri
Aron Logi Hjaltalín var svo kosinn ritari
Varamenn:
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir og Íris Cochran Lárusdóttir
Viljum óska nýju stjórnini alls hins besta á komandi skólaári.
Annars þökkum við, gamla stjórnin, kærlega fyrir þetta skólaár sem senn er á enda. Þetta er búið að vera frábær vetur og margt var á dagskrá Fróða þetta árið. Oktoberfest, Halloween og Árshátíð er það sem fyrst kemur upp í hugann þegar maður hugsar tilbaka. Sjaldan var föstudagur sem fór óáreittur fyrir skemmtanahaldi, vísindaferður eða almennu gamani:).
Hlökkum til próflokadjamms:D
Kv. gamla Stjórnin: Sissó, Óli, Fanney, Alma og Steinar
[24.04.09]
Föstudagurinn 24.apríl - Aðalfundur Fróða:)
Aðalfundur Fróða í kvöld, kl.20:00 á Dillon, 2.hæð.
Sælir kæru vinir,
Í kvöld, föstudaginn, 24. apríl, verður aðalfundur Fróða haldinn með pompi og prakt.
Dagskrá fundarins er svohljóðandi:
a) Skýrsla stjórnar lögð fram ásamt reikningum. Umræður um skýrslu og reikninga.
b) Umræður um lög félagsins og lagabreytingar.
c) Kosningar og úrslit þeirra.
d) Önnur mál. Samkvæmt lögum Fróða ber aðalfundi að kjósa í eftirfarandi embætti:
a) Formann félagsins.
b) Þrjú sæti í stjórn félagsins (ritari, gjaldkeri og meðstjórnandi).
Kosnir séu sérstaklega minnst tveir varamenn í stjórn.
c) Tvo endurskoðendur til að endurskoða reikninga allrar starfsemi félagsins.
- d) Einn skorarfulltrúa nemenda sem jafnframt eru fulltrúi í námsnefnd.
- e) Tvo deildarfulltrúa. Eftir breytingu á skipulagi Háskólans þá höfum við ekki lengur skorarfulltrúa og því er ekki kosið lengur í það embætti. Deildarfulltrúa verður að kjósa innan deildarinnar, og verðum við því að gera það í sameiningu með heimspekinemum og fornleifafræðinemum.
Því verður ekki kosið um deildarfulltrúa og deildarráðsfulltrúa fyrr en á sameiginlegum fundi allra nemendafélaga í deildinni í haust.
Þeir sem vilja bjóða sig fram í hin embættin geta sent okkur póst á frodir@hi.is.
Opið er fyrir framboð alveg fram að kosningu. Kosningarétt og kjörgengi hafa allir skráðir félagar í Fróða.
Annars þökkum við kærlega fyrir þetta skólaár sem senn er á enda. Þetta er búið að vera frábær vetur og margt var á dagskrá Fróða þetta árið. Oktoberfest, Halloween og Árshátíð er það sem fyrst kemur upp í hugann þegar maður hugsar tilbaka. Sjaldan var föstudagur sem fór óáreittur fyrir skemmtanahaldi, vísindaferður eða almennu gamani:).
Frábær vetur! Viljum óska þeim sem verða í hinni nýju stjórn alls hins besta á komandi skólaári.
Sjáumst í stuðinu í kvöld!:D Fyrir þá sem komast ekki í kvöld, þá verður sett á bæði Facebook og síðuna okkar á morgun hverjir verða í nýju stjórninni, fyrir skólaárið 2009-2010. Einnig ef einhverjar lagabreytingar verða á lögum félagsins.
Kv.Stjórnin: Sissó, Óli, Fanney, Alma og Steinar
[04.04.09]
Föstudagurinn 17.apríl - Keppnis,keppnis...:)
Þann 17.apríl erum við í Fróða og félagar okkar í Kuml að skipuleggja keppnismót á milli sagnfræðinema og fornleifafræðinema í nokkrum greinum, s.s. fótbolta, blaki og bjórdrykkju-og kókósbollluáti. Keppnismótið mun vera haldið á Miklatúni þennan umrædda föstudag. Planað er að grilla og bjóða uppá pylsur.
Takið daginn frá og sýnum fornleifafræðinemum hvað sagnfræðinemar eru góðir í fótbolta, blaki og drykkju/áti!
Við í Fróða viljum líka óska ykkur öllum Gleðilega Páska og vonandi eigið þið súkkulaði, fermingakökugóða páska:)
Kv.Stjórnin - frodir@hi.is
[08.03.09]
13.mars næskomandi....
Nú er tími til komin að fara upp á háaloft og athuga kassana hvort þið eigið einhverja skautalufsur á ykkur, því við í Fróða ætlum að fara á skauta föstudaginn 13.mars næstkomandi. Vonandi geta sem flestir mætt á þessa fyrirtaks skemmtun:).. Fleiri upplýsingar á þriðjudag, varðandi tíma og fleira.
Kv.Stjórnin - frodir@hi.is
[25.02.09]
Árshátíð Fróða þann 7.mars
Þann 7.mars ætlum við í Fróða að klæða okkur í okkar fínasta, flottasta púss og halda saman á Hótel Sögu og halda uppá árið með glæsilegri árshátíð:). Árshátíðin í ár verður sem með öðru sniði en fyrri árshátíðir en tíu nemendafélög halda árshátíð samtímis á Hótel Sögu. Sagan verður skipt um í sali á meðan borðhaldi stendur en veggirnir dregnir í burtu eftir borðhald og skemmtiatriði og haldið eitt risaball þar sem hin alkunna hljómsveit Hitakútarnir spila, þekktir fyrir sína snilldargóða ballastemmingu:)
Hótel Saga er beint á móti Þjóðarbókhlöðunni fyrir þá sem hafa alveg látið húsið stóra stóra fara framhjá sér;). Húsið opnar 19:00, en borðhald hefst kl.19:45 sharp:) - Þið hafið vonandi öll tekið eftir plakötum sem hanga uppí Árnagarði, þar sem árshátíðin er auglýst:) og vonandi sjáið ykkur fært um að mæta:) og auðvitað í ykkar fínasta pússi:)
Skemmtiatriði verða m.a. Fróðaverðlaunin, minni karla og minni kvenna og myndasýning frá vísindaferðum vetrarins. Og það skemmtiatriði ætti að verða mjög áhugavert..hehe...:)
Miðasala verður á mándaginn, 2.mars í Árnagarði í kjallara 4500kr fyrir Fróða, 5500kr fyrir ÓFróða:). Steinar og Guðrún, árshátíðarnefndin, sem eru by the by, búin að standa sig frábærlega:), verða þarna MEÐ POSA:)
Einnig verður hægt að millifæra, og sækja síðan miðann sinn í árnagarð. Nánari dagsetning um það auglýst síðar.
Þessar upplýsingar koma allar í mail á ykkur í uglunna, en mæli eindregið með því að mæta í Árnagarð á mánudag og festa sér miða á þessa stórgóðu skemmtun!
Kv.Alma og stjórnin - frodir@hi.is
[14.01.09]
Föstudagurinn 6.febrúar - Sjálfstæðisflokkurinn
Sælir sagnfræðinemar,
á föstudaginn verður vísindaferðin sem allir hafa beðið spenntir eftir, á föstudaginn ætlum við að heimsækja Sjálfstæðisflokkinn. Ferðin hefst kl 17:00 í Valhöll. Þar munu Þórlindur Kjartansson, formaður SUS og Guðlaugur Þór fyrrverandi heilbrigðisráðherra taka á móti okkur. Læknanemar og bókmenntafræðinemar ætla að slást í för með oss, en einnig ætlum við að leyfa sagnfræðinemum að taka með sér vin eða maka.
Endilega látið okkur samt vita hvort þið ætlið að nýta ykkur þetta frábæra tilboð. (Má líka gera á facebook.)
Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að bjóða okkur í pubquis og veitingar, auk þess að svara fyrirspurnum okkar stúdenta.
Fjölmennum í þessa vísindaferð, ég veit að margir eru tilbúnir með glósubókina fulla af spurningum og verðum við að nýta þetta góða tækifæri fyrir kosningar til að kynnast flokkinum.
Vil líka minna ykkur á í lokin á kosningarnar til stúdentaráðs og háskólaþings sem fara fram í háskólanum í dag og á morgun milli 9 og 18.
Bestu kveðjur,
Kv.Alma og stjórnin
[14.01.09]
Föstudagurinn 16.janúar - hittingur hjá Fróða:D:D
Velkomin aftur í skólann!:D:D
Næsta föstudag, 16.janúar, ætlum við í Fróða að breyta frá vikulegri vísindaferð og hittast á háskólatorgi kl.18:00. Þar verður kynnst aðeins, um leið og við seljum í Fróða. Og ætlum við skolum ekki einum öl niður á meðan;). Já, eða gosi fyrir þá sem ölið heillar ekki. Fyrir þá nýnema sem byrjuðu núna á vorönn kostar 2000 kr. inn í félagið og 2500 með Fróðabol.
Eftir það er planið að rölta öll saman yfir í stúdentagarðana þar sem verður gætt sér á pizzu og henni skolað niður með bjór, gosi eða hvítvínsglasi. Eftir pizzuna ætlum við svo að skora á ykkur í singstar, en fyrir þá sem þora ekki meiga vissulega bara horfa á hina gera sig að fífli, það er alltaf skemmtilegt:). Hinsvegar er alveg ljóst hver er singstar meistarinn;). Planið semsagt að kynnast og skemmta sér:)
Um 12 leytið er svo planið að rölta saman niður í bæ á bar og sullast aðeins meir, eins og okkur sagnfræðinemum er einum lagið!!!:D:D
Við viljum endilega fá sem flesta og nýnemar látið endilega sjá ykkur, sem eldri nemendur:)!!
Sjáumst á föstudag, háskólatorgi kl.18:00
Knús og kveðjur frá Fróða
Sigurbjörg formaður, Fanney meðstjórnandi, Óli gjaldkeri, Alma ritari og vefari og Steinar nýnemafulltrúi.
email Fróða - frodir@hi.is ef þið hafið einhverjar spurningar:D:D
p.s svo verðum við að selja hina geysivinsælu Fróða boli - Fróðari en þú, á föstudag.
Já og bara svona bæta við að bjór og vín verður í boði Fróða í takmörkuðu upplagi svo fyrir þá sem vilja drekka meir verða koma með sitt eigið vín.
----
Kv.Alma og stjórnin
[11.01.09]
Þriðjudagurinn 13.janúar - Nýnemadagur og Retro Stefson
Kæru stúdentar
Á Háskólatorgi kl. 14:00 næsta þriðudag, 13. janúar, verður stuð á Háskólatorgi í byrjun vorannar.
1. Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, flytur stutt ávarp.
2. Þjónustuborðið á Háskólatorgi kynnir starfsemi sína.
3. Náms- og starfsráðgjöf kynnir þá þjónustu sem stendur stúdentum til boða. Nánari upplýsingar um NSHÍ.
4. Björg Magnúsdóttir, formaður Stúdentaráðs kynnir starfsemi ráðsins. Nánari upplýsingar: http://www.student.is/studentarad/forsida. Stúdentaráð býður svo nýnemum í gönguferð um Háskólasvæðið til þess að rata þar um.
Kl. 15:00 munu meðlimir Háskóladansins taka syrpu á Háskólatorgi. Nánari upplýsingar: www.haskoladansinn.is.
Kl. 16:00 spilar hljómsveitin Retro Stefson skemmtir stúdentum. Tónleikarnir eru í boði Félagsstofnunar stúdenta (FS) sem rekur m.a. Stúdentagarða, Bóksölu stúdenta, Hámu og Leikskóla stúdenta. Nánari upplýsingar: www.fs.is.
Það getur skipt sköpum fyrir nýnema að kynna sér skólaumhverfið og þá þjónustu sem er í boði. Vel upplýstir stúdentar eiga það síður á hættu að lenda í vandræðum þegar eitthvað kemur upp á í náminu. Þess vegna eru allir nýnemar hvattir til þess að mæta sem og aðrir nemendur og starfslið HÍ.
Með bestu kveðju,
Stúdentaráð Háskóla Íslands
***english version***
Dear students
At Háskólatorg next Tuesday January 13th at 14:00 we welcome all new students to the University.
- Kristín Ingólfsdóttir, rector of U of I has a short speech.
- The Service Desk at Háskólatorg tells students about the services it provides.
- Introduction of the U of I course- and employment department tells students about the services it provices.
- Björg Magnúsdóttir, Chairperson of the Student Council, has a short speech about the Council's work. Further info: http://www.student.is/studentarad/forsida. After that, members of the Student Council take new students for a walk around the University area.
At 15:00 members of the University's dance flock swing at Háskólatorg. Further info: www.haskoladansinn.is
At 16:00 the music band Retro Stefsson plays at Háskólatorg – sponsored by FS.
Please meet us at Háskólatorg next Tuesday and lets have a great start of the spring semester.
With be
st regards,
The Student Council
-------
Kv.Alma og stjórnin
[10.01.09]
Vorönn 2009
Gleðilegt nýtt ár, sagnfræðinemar! Vonandi áttu þið öll gleðileg jól og frábær áramót.
12.janúar næstkomandi byrjar skólinn aftur og ég treysti því að þið iðið öll í skinninu að fara í fyrstu vísindaferð 2009:) Hún verður farin þann 23 janúar í Vífilfell. Seinasta vísindaferð í Vífilfell var mjög skemmtileg, þeir voru mjög örlátir og við fengum að sjá gamlar Coke Cola auglýsingar. Einnig var farið með okkur um allt og fengum að vita margt um framleiðsluna.
Næsti föstudagur, 16 janúar, verður hinsvegar bara rólegur. Hittast og spjalla, um kvöldið 8/9 leytið.
Endilega látið sjá ykkur næsta föstudag!:) Gaman að sjá sem flesta koma, þó það væri bara í litla stund.
Set inn í vikunni hvar verður þetta verður 16 janúar.. og enn og aftur.. Facebook kæru vinir. Á facebook erum við með groupuna Sagnfræðinemar og þar koma inn videó og myndir af djamminu og allar upplýsingar um visindaferðir.
Kv.Alma og stjórnin
[27.11.08]
1.desember dagskrá - Vér mótmælum öll!
Kæru stúdentar Háskóla Íslands
1. desember er hátíðisdagur stúdenta og af því tilefni verður Stúdentaráð með ærleg hátíðarhöld úti í bæ og á Háskólatorgi. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, mætir, ljúffengar veitingar verða í boði og stórsveitin FM Belfast leikur fyrir dansi og stuði á Háskólatorgi. Stúdentar HÍ! Sameinumst og skemmtum okkur öll saman á deginum okkar.
Dagskráin lítur svona út 1. desember:
10:00
-Hátíðarsamkoma í hátíðarsal Aðalbyggingar. Kristín Ingólfsdóttir, rektor, ávarpar stúdenta. Heitt kakó og kruðerí í boði.
-Halla Mia Ólafsdóttir, meðlimur Stúdentaleikhússins og stúdent flytur ljóð.
-Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra er heiðursgestur.
11:00
-Stúdentar við Háskóla Íslands sameinast öðrum stúdentum og námsmönnum landsins á Austurvelli.
-DJ á svæðinu og menntaviti afhjúpaður. Menntavitinn hefur það hlutverk að lýsa okkur leið út úr kröggunum og minna ríkjandi stjórnvöld á mikilvægi menntunar á tímum sem þessum. Nánari upplýsingar á www.student.is/menntavitinn.
12:00
-Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands er heiðursgestur á Háskólatorgi og ávarpar stúdenta.
-Háskólakórinn flytur lög.
-FM Belfast leikur fyrir dansi.
-Hádegisverður í boði.
*********English version***********
Dear students within the University
1st December is a national festival day for students and because of that, the Student Council will have a special program. The president of Iceland, Mr Ólafur Ragnar Grímsson will be attending, free lunch for everybody and the musical band FM Belfast is playing at Háskólatorg. Students within the University in Iceland! Let's unite and have fun on our day.
Programme 1st December:
10:00
-Festival in the gala hall in the University's main building. Kristín Ingólfsdóttir, rector has a speech. Hot cocoa and cookies.
-Halla Mia Ólafsdóttir, member of the Students' Theatre delivers a poem.
-Minister of Education is a guest of honour.
11:00
-Icelandic students gather up at Austurvöllur.
-A dj will be present and we will expose a education-lighthouse which has the role of reminding MP's of the importance of higher education. Further info: www.student.is/menntavitinn.
12:00
-Ólafur Ragnar Grímsson, president of Iceland is a guest of honour in Háskólatorg.
-The University's choir sings a few songs.
-The band FM Belfast plays for students.
-Free lunch!
- Sagnfræðinemar! Sameinumst á Austurvelli kl.11:00! Ekki er verra að fá frían hádegismat, í miðjum prófalestri;).
Kv.Alma og stjórnin
[24.11.08]
Prófalestur og próflokadjamm
Takk fyrir seinast. Það var afar áhugavert að fá að spurja Samfylkinguna spjörunum út í síðust vísindaferð Fróða ársins 2008, sem var síðastliðinn föstudag. Núna erum við komin í frí fram í janúar, í vísindaferðum.
Við í Fróða óskum ykkur góð gengis í prófatíðinni og vonum að þið missið ekki vitið í prófalestri. Frá og með 28.nóvember verður bókasafnið opið frá 8:15 til 22:00 virka daga en frá 10-6 laugadaga og sunnudaga. Fyrir þá sem eru að fara í sín fyrstu háskólapróf, mætið tímalega fyrir prófin, hafið með ykkur eitthvað að drekka - vatn er best, e.t.v. banana eða eitthvað annað að borða ef þið verðið svöng og skilríki. Og ekki gleyma skrifærum!:)
Í sagnfræði hefur ritgerðarspurningar verið eftirlæti kennara svo búið ykkur undir það. Í fyrra voru svo hugtök í heimssöguprófinu en það er uppúr bókinni - svo ekki gleyma því;)
Gangi ykkur vel og ekki missa vitið!
Við í fróða er alltaf hægt að ná á frodir@hi.is - ef þið hafið spurningar um eitthvað:)
Að þessu sinni verður próflokadjammið í formi fyrirpartý heima hjá Óla, fyrir Háskólapróflokadjammið. Það verður auglýst síðar.
kv. Alma Sigrún og stjórnin
[12.11.08]
Vísindaferð - Sjóminjasafnið, Víkin - 14.nóv.kl.18
Ágætu sagnfræðinemar, nú er komið að NÆST seinustu vísindaferð haustsins 2008. Nú verður farið í fyrsta skipti á Sjóminjasafnið Víkin, sem opnaði eftir miklar endurbætur í sumar. Safnið er staðsett á frábærum stað við sjóinn, Grandagarði 8. Safnið varðveittir einnig Landhelgisgæslu-og varðskipið Óðinn, sem var gerður að safngripi og eflaust stærsta safngripi landsins og eina skipið í íslandssögunni sem hefur verið gert að safni, sem þykir þó algengt útí löndum.
Á safninu mun Sigrún Magnúsdóttir, forstöðukona safnsins taka á móti okkur og fornleifafræðinemum. Við munum fara í skoðunnarferð bæði um skip og safn, og því margt nýtt að skoða. Veit með vissu að fáir sagnfræðinemar, þó einhverjir, hafa sótt safnið heim í sumar, því ég vinn sem safnvörður á safninu:)
Ætti að vera spennandi heimsókn fyrir þá sem hafa ekki komið á safnið áður en þeir sem eru EKKi í Fróða myndu þurfa galdra fram eitt stykki Jón Forseta
Gerum okkur glaðan dag á safninu og mætum sem flest:D
kv. Alma Sigrún og stjórnin
[06.11.08]
Norræni skjaladagurinn 8.nóvember 2008 - Gleymdir Atburðir
Opið hús í Þjóðskjalasafni Íslands - laugardaginn 8.nóvember 2008, kl.11:00-15:00. Þjóðskjalasafn og Borgarskjalasafn kynna starfsemi sína á 3.hæð Þjóðskjalasafnsins. Þjóðskjalasafnið vill bjóða sagnfræðinemum sérstaklega velkomna.
Dagskrá Borgarskjalasafns Reykjavíkur og Þjóðskjalasafns Íslands:
Kl.11:00 Setning
Fyrirlestrar
Fyrirlestrar í samkomusal á 3.hæð, 15 - 20 mínútur hver:
Kl.11:30 Anna Agnarsdóttir - Vinir eða Óvinir? Samskipti Íslendinga og Breta í aldanna rás
Kl.12:00 Guðfinna S. Ragnarsdóttir - "Þú berð líka ábyrgð"
Kl.13:00 Gunnar Örn Hannesson - Skólapiltar barðir til bókar
Kl.13:30 Björn Jón Bragason - Hafskipsmálið í ljósi nýfundinna skjala
Einnig verða sýningar á 3.hæð
1. Sýning á margmiðlunarefni um manntalið 1703
2. Skjaladagsvefurinn
3. Vefur um Bjarna Benediktsson
4. Frumskjöl um gleymda atburði
Einnig verða skoðunarferðir í skjalageymslur með leiðsögn kl.12:30 og kl.14:30, lagt af stað úr anddyri
Veitingar verða í boði á 3.hæð og bækur,kort og plaköt til sölu og blöðrur fyrir börnin
AÐGANGUR ÓKEYPIS OG ALLIR VELKOMNIR
bestu kveðjur, Þjóðskjalasafns Íslands
Krakkar, endilega kíkjið á www.skjaladagur.is
. Fróðlegir fyrirlestrar - gott fyrir námið!!;)
kv. Alma Sigrún og stjórnin
[06.11.08]
Útgáfupartý Sagna og pöpkvis!
Í tilefni af útgáfu 28.árgangs Sagna, tímarits sagnfræðinema, verður boðið í útgáfupartý og pöpkvis á Higlander í Lækjargötu á föstudaginn 7.nóvember næstkomandi. Bjórkútur verður í boði og opnaður kl.20:30 en kvisið hefst kl.21:00
Þemað að þessu sinni verður dónaskapur í sinni víðustu mynd og munu spurningahöfundar og spyrlar leggja metnað sinn í að ganga fram af lesendum í bland við hefbundnari spurningar. Glæsilega verðlaun auk bjórspurningar:)
S.s. bjór í boði á Higlander í útgáfupartý Sagna annað kvöld:D - gott fyrir veskið að fá fríkeypis bjór á krepputímum;) - eftir að kúturinn er búinn verður boðið uppá tilboð á bjór fyrir Fróða, á 550 kr.
hlökkum til að sjá ykkur
Stjórn Fróða og Ritstjórn Sagna
p.s. Takk fyrir seinast sagnfræðinemar! Hrekkjavaka var brjáluð skemmtileg!:) Ég skellti myndum sem ég tók á föstudagskvöldið á Picassa vefin minn og ykkur er velkomið að kíkja á hann:) hérna er slóðinn: http://picasaweb.google.com/AlmaSigrun
Næsta föstudag, 14.nóvember munum við síðan skella okkur í vísindaferð á Sjóminjasafnið og síðasta vísindaferð 2008 verður síðan Samfylkingin 21.nóvember.
kveðjur, Alma
[28.10.08]
Hrekkjavaka 31.oktober 2008!!
Vísindaferðin: Næstkomandi föstudag munum við ásamt fornleifafræðinni og heimspekina skunda í vísindaferð í Ölgerð Egils Skallagrímssonar! Það komast einungis 20 manns í þessa ferð úr Fróða og því er skráning nauðsynleg og viljum við því biðja þá sem hafa áhuga á að mæta að senda okkur póst á frodir@hi.is, og gerið það sem fyrst því það stefnir allt í það að það komist ekki allir með sem vilja!! Húsið verður LÆST kl 17:00 þannig að allir þeir sem verða ekki komnir fyrir þann tíma þurfa að dúsa úti í kuldanum! Mælum því með því að þið séuð að mæta í seinasta lagi 16:50 ef þið viljið komast inn og fá frían öl!
Partýið: Eftir vísindaferðina munum við svo fara á Tunglið en þar verður haldið RISA HREKKJAVÖKUPARTÝ ásamt fornleifafræðinni, lífeindafræðinni, heimspekinni, guðfræðinni og félagsráðgjöf! Þetta er þar með stærsta partý skólaársins sem að Fróði skipuleggur og getum við lofað því að þetta verður svaaaakalegt!!! Fyrir þá sem koma ekki í Ölgerðina þá opnar Tunglið kl 20:00 .. en það er algjört skilyrði að vera í búning til að komast inn!! Það er frítt inn fyrir Fróða en fyrir Ófróða þá kostar 500 kall inn!
Áfengið: Það verður bjór í boði nemendafélaganna framan af svo við hvetjum ykkur til að mæta stundvíslega til að missa ekki af veigunum. (Að sjálfsögðu verður einnig boðið upp á léttar veigar í Ölgerðinni)
Búningar: Það er vissulega stór möguleiki á því að ef þú álpast í Hrekkjuvökupartýið ÁN þess að vera í búning (þvílík hneisa) að þér verði hent öfugum út aftur! Því mæli ég svo sannarlega með því að þú farir að leggja höfuðið strax í bleyti til að finna einhvern ofurhræðilegan búning. Það verða svo veitt glæsileg verðlaun fyrir besta, skemmtilegasta og hræðilegasta búningin!!! Þar sem fornleifafræðin og heimspekin verða með okkur í Ölgerðinni þarftu ekki að hafa áhyggjur af að vera sá eini sem mætir í búning í vísó.. Það verða náttúrulega ALLIR í búning!!
Hlökkum til að sjá ykkur á föstudaginn í hræðilegu stuði ;)
Hryllingskveðjur,
Sigurbjörg hin ógurlega og litlu púkarnir hennar
[23.10.08]
Karíókí kvöld Fróða
Vonandi hafa allir haft það gott í verkefnaviku og nú þegar skiladagar fara hrannast upp á verkefnum er gott að taka aðeins úr sambandi og skemmta sér með skólafélögunum. Og því útaf fjöldamörgum fyrirspurnum ætlum við í Fróða að bjóða uppá karíókí annað kvöld. Ljóst er af seinustu Þingvallaferð að það eru einhverjir innan Fróða sem geta sungið! Það er klárt því við eigum það á vídeó;)!:) Fjörið hefst kl.20:00 og munum við hittast á Dillon og lappa saman í karíókí.
Komið svo með keppnisskapið því það hefur verið SKORAÐ Á OKKUR af lífeindafræðinemum í karíókí og við ætlum sko ekki að tapa fyrir einhverjum lífeindafræðinemum þegar við getum sungið betur!!:) Nú skal hver og einn æfa sig í singstar í kvöld og mæta galvaskur/vösk annað kvöld.
Semsagt: KARÍÓKÍ 24.OKTOBER - GENGIÐ SAMAN FRÁ DILLON KL.20:00
p.s. Þeir sem vilja mæta seinna en 8, þá er þetta í tælensku veitingahúsinu við Vegas á laugarvegi.
kv. Alma og stjórnin
[11.10.08]
Verkefnavika framundan
Takk kærlega fyrir síðast kæru vinir! Þetta var alveg svona ÆÐISGENGISLEGA skemmtilegt oktoberfestfyrirpartý og oktoberfest! Það var svona þrusu gaman og það er ljóst að sumir geta sko drukkið og dansað!
Vonandi getum við sett myndirnar inn á þennan vef en þangað til notumst við facebook, picasa og flikr. Veit að það yrði auðvitað þægilegast að setja þær hingað inn, en það er svo tímafrekt. Hérna er picassa-ið mitt:) - svona fyrir þá sem ekki eru með facebook. En krakkar mínir, það er 2008 - fáið ykkur facebook :). Frábær leið til að eyða tíma og hafa samband við fólk sem maður sér næstum aldrei. http://picasaweb.google.com/AlmaSigrun
Framundan er semsagt verkefnavika og það verður semsagt frí hjá okkur í Fróða, þar sem það eru eflaust nokkrir sem ætla heim, eða einbeita sér að lærdómnum. Föstudaginn 24.oktober munum við hinsvegar koma sterk inn með eitt stykki karíókíkvöld og reynum nú að mæta vel til að sýna hvað við getum.Vona að allir eigi skemmtilega verkefnaviku framundan;) og við hittumst hress á djamminu 24.okt. Nánari upplýsingar um það mun koma hér í vikunni fyrir umrætt djamm.
Auf Wiedersehen, Alma
[9.10.08]
BREYTING Á STAÐSETNINGU FYRIRPARTÝS!!
Breyting hefur verið á staðsetningu fyrir-oktoberfest-partýs vegna óviðráðanlega aðstæðna. Það breytist ekkert nema staðsetning partýsins en það verður haldið INNI á skemmtistaðnum, Tunglinu í stað Sirkusportsins.
MÆTING KL.17:00 Í TUNGLIÐ, TRYGGVAGÖTU 22. FRÍR BJÓR FRAMANAF, ÞEGAR SÁ BJÓR ER BÚIN VERÐUR BJÓR Á 500 KR.LÍKT OG ALLTAF.
Bjórkeppnin er enn á sínum stað og köllum við nú á sagnfræðinemur til að skrá sig hjá frodir@hi.is! Ath. verðlaun í boði og bjórinn í keppnini verður að sjálfsögðu FRÍKEYPIS!!
Svo ég endurtaki mig : FYRIR-OKTOBERFEST-PARTÝ FÆRT Á SKEMMTISTAÐINN TUNGLIÐ.
Tunglið, tryggvagötu 22: http://ja.is/kort/
Vonum að sem flestir láti sjá sig í þessa rosalega, mögnuðu oktoberfestgleði og skáli með samnemundum sínum. Nú er einnig tækifæri fyrir þá sem enn hafa ekki látið sjá sig í Vísindaferðum að kynnast nýju og skemmtilegu fólki:). Dagskrá Oktoberfest hefst kl:19:00.
Auf Wiedersehen, Alma
[7.10.08]
Fyrirpartý og Oktoberfest
Á erfiðistímum þurfa menn og dýr að standa saman. Standa saman gegn sameiginlegum óvini. Þá er nauðsyn að draga til sín sinn innri kraft og festu og mæta honum óttalaus. Því, nú, mínir kæru samnemendur þurfum við að standa saman. Okkur hefur beinlínis verið lýst stríði á hendur!!!!
Föstudaginn 10.oktober mætum við galvösk og tilbúin í stríð fyrir utan Háskólatorg kl.16:30. Þaðan munum við stíga föstum skrefum til Sirkusportsins á Laugarvegi. Þar mætum við saman og vígaleg á svip! Í Sirkusportinu hefur verið kallað til oktoberfest FYRIR partý en partýhaldarar, félagsráðgjöf, hafa verið svo hugrakkir AÐ ÞORA að skora okkur sagnfræðinema á hólm í bjórþambkeppni.
Svo kæru vinir, stöndum saman! Stöndum saman og drekkum bjór! Og sýnum félagsráðgjöf að VIÐ KUNNUM AÐ DREKKA!!!!!!!!
Svo þegar þessu lýkur, þegar VIÐ HÖFUM UNNIÐ og sýnt festu og sterkan maga, munum við halda niður til Oktoberfest á túni Háskólans, en þar búumst við að vera um 19:00 því þá hefst dagskráin.
Bjórþambarar: búið ykkur undir að SIGRA sætan og vel verðskuldaðan sigur! Við hin mætum munum hvetja og styðja okkar fólk!
Félagsráðgjöf: Ykkur hefur verið svarað! Þið megið búast við okkur
og
BÚAST VIÐ TAPI!!!!!!!
baráttukveðjur,
Alma og stjórnin
p.s. Á túni Háskólans verða stór tjöld og okkur hefur verið tjáð að þar verða gólf fín og flott svo þeir sem vilja mæta í háhæluðu geta það óttalausir við drullu. Vil minna á bæði mottukeppni og búningakeppni um kvöldið.
[6.10.08]
Oktoberfest
Takk fyrir seinast. Steinar a.k.a. Dansfróði var kosinn á síðastliðnu föstudagskvöldi sem nýnemafulltrúi í stjórn Fróða og óskum við honum auðvitað til hamingju með þennan merka, merka heiður:)!! Næst á dagskrá hjá okkur í djamminu er svo auðvitað hin merka festival sem er kennd við Oktober. Hugsanlega gerum við eitthvað skemmtilegt saman fyrir sjálft festið en allt kemur það í ljós á morgun.
Oktoberfest dagskrá:
Miðvikudagur:
11:40 – 12:30 Málþing um lady-boys frá Filippseyjum og kvikmyndina sem allir eru að tala um: The Amazing Truth about Queen Raquela. Málþingið fer fram í hringleikasalnum á Háskólatorgi H-101.
20:00 The Amazing Truth about Queen Raquela forsýnd á Íslandi fyrir stúdenta HÍ í sal H-102. Miðinn kostar 600 kall.
Fimmtudagur:
17:00 Opnunarhátíð með þýska sendiherranum og fallegum þýskum hljómum.
20:00 þýskt Bingó og þýskt sjónvarpsefni.
Föstudagur:
Tjaldið opnar kl. 17:00
*Búningakeppni - Hver mætir í þýskasta búningnum?
*Mottukeppni - Hver er með glæsilegustu mottuna.
*Drykkjukeppni milli deilda - Hægt er að skora á deild/deildir í drykkjukeppni úr stígvèli.
*Þýsk tónlist verður spiluð alla daga.
Laugardagur:
* Október"Rokk"Fest!!! / Ocotber Rock-fest
* Mugison- http://www.myspace.com/mugison
* Mamút - http://www.myspace.com/mammut
* Who knew - http://www.myspace.com/wellwhoknew
* Dikta - http://www.myspace.com/dikta
* Agent Fresco - http://www.myspace.com/agentfresco
Nánar um Oktoberfest:
http://oktober.is/
Nánar um okkar dagskrá kemur á vefinn á morgun og til ykkar í pósti:) - Við Fróðar vonum sem flestir láti sjá sig á Oktoberfestivalinu. Eins og dagskráin gefur tilkynna verður þetta svaka gaman og betra enn ef einhver mætir í búning;) eða með einhverja killer mottu sem þeir eru búnir að vera fela fyrir mannskapnum:)
kærar bjóóóóóóóóóóóóóóóóóóóóóóóóóóóóóóóórkveðjur, stjórn Fróða
[1.10.08]
Vinstri Grænir og auka-aðalfundur!
Jæja, á föstudaginn næstkomandi - 3.okt.- verður farin vísindaferð til Vinstri Græna og eflaust verður mikið rætt og skrafað enda mikið að gerast um þessar mundir. Ferðin verður því örugglega mjög skemmtileg og spennandi verður að sjá hvað verður rætt:). Strax eftir fundinn, meðstuttumatarstoppiábæjarinsbestu, verður farið uppá Dillon og kosið nýnemafulltrúi og í árshátíðarnefnd. Þeir sem vilja bjóða sig fram þurfa að senda Sissó email á seh7@hi.is og mæta svo á föstudagskvöldið, auðvitað!:)
Svo vil ég hér með auglýsa okkar nýstofnuðu myndasíðu, því myndirnar verða því miður ekki settar á þessa síðu hér, því það er einfaldlega of tímafrekt. Því stofnaði ég Fróða Flikr síðu þar sem við munum setja inn allar myndir af Fróðaárinu 08-09.
veffangið er: http://www.flickr.com/photos/30781180@N05/ Endilega farið og skoðið. En eins og þið skiljið vonandi er síðan enn í vinnslu, myndirnar eru út um allt - hjá þremur stjórnarmeðlimum en vonandi munum við setja sem fyrst myndirnar inn.
kv,
Alma Sigrún, ass19@hi.is
[29.09.08]
Oktoberfest allan oktober!!!
Hædidílí,hódídílí - takk fyrir síðast kæru sagnfræðinemar. Bjórkvöldið heppnaðist bara vel og hér eru nýlega kjörnir fulltrúar sagnfræðinema meðal deildarfulltrúa: Heiðar og Sölvi fyrir hönd grunnema og Pálmi fyrir hönd framhaldsnema.
Hér á síðunni til vinstri sjáið þið svo alla afslættina sem þið fáið með því að nota félagsskírteinið sem við dreifðum síðastliðinn föstudag. Þeir sem enn hafa ekki fengið kortin sitt þá munum við mæta með það á föstudag.
Næsta föstdag, 3.okt., verður farin vísindaferð til Vinstri Græna en það var MJÖÖG skemmtilegt í fyrra og við fengum engan annan en Ögmund sem fyrirlesara. Eftir það verður svo haldið strax á Dillon en þar ætlum við að halda auka-Aðalfund þar sem við þurfum að kjósa nýnemafulltrúa. Þegar hafa nokkrir sent email á Sissó, seh7@hi.is, um að viðkomandi vilji bjóða sig fram. Enn er hægt að bjóða sig fram - bara senda póst á Sissó. Einnig viljum við auglýsa eftir 2 skemmtilegum nýnemum sem vilja bjóða sig fram í árshátíðarnefnd. Sú nefnd verður einnig kosin 3.oktober á fundinum. Endilega skellið ykkur - núverandi formaður og meðstjórnandi voru í síðustu nefnd og höfðu mikið gaman af:)
8.-11.oktober eru svo Oktoberfest í Háskólanum og við í Fróða munum auðvitað fylkja liði niðureftir og fá okkur einn öl eða tvo. Því fleiri því betra, krakkar mínir!:)
31.oktober - kæru, kæru sagnfræðinemar, verðið þið einfaldlega að taka frá! Og byrja að leita ykkur að búning því við í Fróða ætlum að halda, ásamt tveimur öðrum nemendafélögum - HREKKJAVÖKUPARTÝ!! Þó að það sé meira en mánuður í það þá vildi ég deila þessu með ykkur svo þið gætuð tekið þá dagsetningu frá, leitað ykkur að búning og byrjað að hlakka til!! Ég er allavega búin að taka þessar þrjár dagsetningar frá, og búin að finna mér geggjaðan búning. Partýið verður haldið innandyra - svo þið þurfið ekki að leita ykkur að górillubúning eða einhvern hlýjan uppá kulda. Þó auðvitað, að górillubúningur sé mjööög sniðugt. Ef einhverjir eiga í vandræðum með búning, þurfa hjálp við að sauma eða eitthvað - endilega hóið í mig - ass19@hi.is. Einnig getiði fundið heilan heim af hrekkjavökubúningum og dóti á www.hokuspokus.is . Og svo engin miskilningur sé, þá er ætlast til í að fólk mæti í búning. Það væri svo lame að einn myndi mæta bara í gallabuxum. Það þarf ekkert að kosta mikið að redda sér einum góðum búning, það eiga allir gamla öskudagsbúninga eða dimmiteringarbúninga.
strumpakveðjur,
Alma Sigrún, ass19@hi.is
[24.09.08]
Föstudagurinn 26.september
Vá, þrjú blogg í þessari viku! Þið hljótið nú að finnast vel upplýst!!! Jæja, hér koma enn einn auglýsingin fyrir föstudagskvöldið næstkomandi.
Þá verður bjórkvöld og fundur á Dillon um kl.8:00. Fróði mun bjóða upp á bjór og við munum halda fund með öðrum í sagnfræði og heimspekideild til að kjósa í nokkur mikilvæg embætti. Við í sagnfræði þurfum auðvitað að fjölmenna til að kjósa okkar fólk, því við munum deila fimm embætti með fólki úr þremur sviðum. Þess vegna, kæru sagnfræðinemar, ætlum við að fjölmenna og kjósa okkar fólk! Það eru þegar komnir nokkrir sem ætla bjóða sig fram, en enn er hægt að senda e-mail á Sissó, okkar drottningu á sjó og landi - seh7@hi.is.
Að auki viljum við auglýsa við ykkur öll sem skáðu sig í Fróða, þá munum við útdeila félagsskírteinum Fróða einnig á föstudagskvöldið. Svo það er þess virði að mæta. Getið notað skírteinið um helgina á einn góðan subway eða Serrano, eða kannski fengið ykkur pítsu á Wilsons :) :) :) :).
MÆTUM NÚ ÖLL Á FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ Á DILLON OG KJÓSUM OKKAR FÓLK!!! (og drekkum bjór í boði Fróða;))
frábærlínólegar kveðjur frá Ölmu, Sissó og Fanney:):):):):):):):):):):):):):):):):):):):):):):):):)
Ef þið hafið einhverjar spurningar varðandi vefinn hafið samband - ass19@hi.is eða varðandi eitthvað annað frodir@hi.is
[23.09.08]
Gulllitaður mjöður í boði:
Á föstudaginn, 26 september verður bjórkvöld á Dillon um 8 leytið. Á bjórkvöldinu verður einnig kosið í þau embætti sem varða Sagnfræði- og heimspekideild (ath.nánar í póstinum sem Sissó sendi á alla sagn-nem). Ef þið fenguð ekki póstinn vinsamlegast sendið póst á Sissó, seh7@hi.is.:)
Mæli eindregið með mætingu á föstudagskvöldið, þar sem við munum einnig dreifa félaga-skírteinum í Fróða. Einnig ef þið viljið hafa einhver áhrif - þá verðiði að mæta og/eða bjóða ykkur fram. Plús auðvitað að það verður stuuuuuuuð:):)
Fyrir þá sem vilja ólmir sjá myndir af seinasta djammi - þá verðið þið einfaldlega að koma á www.facebook.com - Uni, Iceland, Group: Sagnfræðinemar - þar setur Fanney - sem er digital master, allar myndir og video af vísindaferðum og Þingvallaferð:) - þar eru að finna alveg snilldar video úr Þingvallaferð. Það mun dragast að ég muni setja myndir hér inn, því það er einfaldlega flókið - hehe.. einfaldlega flókið.. hehe. anyway - bara þolinmóð eða komið á facebook.
Jæja, ekki meir í bili - bara það að við vonum að sjá ykkur á föstudagskvöldið:):):):) í stuði:):):):):)
stuðkveðjur, Alma og aðrir Fróðar ( frodir@hi.is )
[21.09.08]
Bjórkvöld og fundur með Kuml og Soffíu!!
Takk kærlega fyrir gærdaginn, kæru sagnfræðinemar - sem mættu í Þingvalla/skálholts/óvissu-skemmtiferðina:) - Þetta var alveg gífurlega skemmtilegt. Fyrir þá sem mættur ekki:( - þá var dagurinn svona:
Ferðin byrjaði með Þingvöllum, gönguferð, léttum veigum og mjög fyndnum og skemmtilegum leik. Þar sýndu nokkrir nýnemar ásamt eldri nemendum snilli sýna í að hlaupa í 10 hringi í kringum léttu veigarnar eftir að hafa drukkið þær.:) Síðan var haldið í Skálholt þar sem við fengum afar góðann og léttann fyrirlestur yfir sögu skálholts og svo var auðvitað farið í gegnum göngin frægu. Eftir það var leyndóið - óvissan í ferðinni en það var auðvitað ekkert nema Draugasetrið - en það er alveg víst að sumir sagnfræðinemar trúa á drauga því óp þeirra ómuðu um allt setrið!:D Eftir þá reynslu var farið svo í bæjinn þar svið héldum beint á Pizza-hut og borðuðum fylli okkar af pizzu, gosi og ís. Alveg hreint brilliant ferð og verður seint toppuð - sér í lagi útaf honum Steina / Dansfróða sem sýndi snilligáfu sýna á gítarinn og mætti með söngbókina og sungum við öll hástöfum í rútunni - bílstjóranum til mikillar gleði!! Þakka verður auðvitað ykkur öllum, sem mættu, fyrir alveg snilldar ferð og ljóst er að við munum taka oftar upp söngbókina!
Næsta föstudag, 26.september, verður engin vísindaferðin farin heldur verður bjórkvöld á Dillon vegna þess að við þurfum að halda fund með hinum nemendafélögunum sem eru með okkur í Sagnfræði-og heimspekideild. Því þá verður kosið deildarfulltrúi fyrir deildina. Mjög mikilvægt að fólk hugsi um þetta og ef það vill bjóða sig fram sem deildarfulltrúi þá þarf það að senda okkur línu á frodir@hi.is . Deildarfulltrúi er í raunnini fulltrúi deildarinnar allrar við hinar deildirnar á Hugvísindarsviði, við deildarforseta og við forseta hugvísindarsviðar. Endilega ef þið eruð óviss hvað deildarforseti gerir, hafið samband! Mikilvægt er líka að fólk mæti:) - þegar kosið er í embætti. - Þitt álit og þáttaka skiptir máli:)!
Allt mun ég setja inn á síðuna þegar allt er komið á hreint. Einnig munu við dreifa félagskortunum fyrir Fróðafélaga í vikunni.
Knús og kveðjur:D
Alma varamaður og vefari ( ass19@hi.is )
[17.09.08]
Þingvallar/Skálholts/Óvissu-skemmtiferð!!!!
Jæja, elsku lömbin mín!
Þá er komið að því! Þingvalla/skálholts/óvissu/skemmtiferðin okkar verður farin næstkomandi laugardag 20.september.
Lagt verður af stað frá Háskóla Íslands (malarbílstæðið beint á móti aðalbygginguni) á slaginu 11:30 og er því mæting kl.11:15 !!!!!!!!!!!!!!!!
Ferðin verður með öðruvísi sniði í ár (enda aukaferð, þar sem hin týpiska þingvallaferð er yfirleitt farin annað hvert ár). En þar sem kennarar vorir eru sérstaklega uppteknir á haustmánuðum, höfum við ákveðið að fara án þeirra í þessa ferð og verður hún því á léttari kantinum. Þó munum við fá létta leiðsögn og fyrirlestra bæði á Þingvöllum og Skálholti þannig að einhverja fræðslu ættu fræðslusjúkir sagnfræðinemendur að fá. En sumsé gleðin verður í fyrirrúmi í þessari ferð og munum við sjálfsagt stoppa og henda okkur í svosem einn og einn leik til að þjappa hópnum saman og skemmta okkur:)
Jæja... (nánari ferðalýsingu er að fá í póstinum sem Sissó sendi á alla sagnfræðinemendur)
Í ferðinni mun Fróði bjóða upp á léttar veitingar (þannig að ef þið sjáið skeggjaðan mann með bjórkút, þá er hann á okkar vegum), en þeir sem vilja hafa með sér veitingar í föstu formi taka það með sér sjálfir. (Sumsé, bjór=fróði, nesti=þú). Það gæti orðið kalt þannig að allir klæða sig vel, við erum nú íslendingiar og ættum að kunna það... Enginn er verri þótt hann vökni, ekki satt?
Það mun kosta 1500 kall á Fróðahaus í þessa ferð, en ófróðir þurfa að reiða fram 2000 kallinn. Þeir sem mun hafa áhuga geta skráð sig (og borgað) í félagið í ferðinni, og munu þeir þá að sjálfsögðu einungis borga 1500 kall.. Alltaf að græða!:)
Það þarf að skrá sig í þessa ferð fyrir hádegi á föstudag, sendið okkur póst á frodir@hi.is . Ef það leynist lítill gítarsnillingur í þér máttu endilega láta okkur vita, það er jú engin rútuferð án gítarglamurs og falskra söngradda.
Sjáumst öll í melónustuði á laugardaginn!!!!!!!!!!!!!:):):):)
kv.Sissó og hinir í Fróða
[16.09.08]
Sögufélag og Þingvallaferð!!!!
Jæja, takk fyrir seinast, allir þeir sem mættu seinasta föstudag! Það var HÖRKUFJÖR uppá Árbæjarsafni, American Style og á English pub. Frétti víst að það komu einhverjir skotar og skemmtu lýðnum en það var víst eftir að ég fór:).
Næstkomandi föstudag, þann 19.september er planað fyrir nýnema í sagnfræði að fara í Sögufélagið, Fischersundi - við Ingólfstorg. Þar munu við hitta bæði sagnfræðiprófessora, sagnfræðinga og meðlimi Sögufélagsins. Við í stjórninni mumum að sjálfsögðu mæta til að vera nýnemum til halds og traust - og auðvitað útaf því að við erum svo skemmtileg:)!! Það er s.s mæting upp í Fischersund, kl.17:00.
Næsta laugardag, eins og þið væntanlega vitið eða hafið heyrt, er planið að fara í Þingvallaferð. Við ætlum að halda sumu í dagskránni á huldu. Allavega er komið á hreint, eins og í fyrra, að við munum fara til Þingvalla og svo í Skálholt en svo er búið að bætast við óvæntur dagskrárliður sem mun vonandi koma skemmtilega á óvart:):). Svo munum við í stjórninni auðvitað bjóða uppá léttar veigar, svo enginn hafi áhyggjur af því;)!
Gerið laugardaginn lausan, munum þurfa að fá tölu seinna í vikunni , hve margir vilja koma með varðandi rútu og léttu veigarnar og fleira.
Einnig er stórt samfélag sagnfræðinema á www.facebook.com. Fyrir þá sem er á facebook, leitið okkur uppi - þar setjum við alltaf inn events og erum með group fyrir sagnfræðinema við HÍ - heitir einfaldlega sagnfræðinemar;).
Ef þið hafið einhverjar spurningar eða eitthvað, þá erum við alltaf til staðar:) - frodir@hi.is
bestu kveðjur, Alma Sigrún vefari/varamaður ásamt Sissó formanni, Fanney meðstjórnanda, Óla gjaldkera og Kristjóni ritara. Vonandi sjáum við ykkur sem flest um helgina!!!!:)
p.s. Það er skemmtilegra í háskóla í góðra vina hópi. Og hvar eignast maður þá? Í VÍSINDAFERÐUM!!!!
Næsta föstudag nýnemakynning í Sögufélaginu - Laugardaginn 20.sept - ÞINGVALLAFERÐ! Skyldumæting!:):) Einhver bið verður á því að við setjum myndir hér inn, en á meðan getiði farið inn á facebook. Fanney, meðstjórnandi setti inn myndir af kennara/nýnemadjammi og mun bráðlega fara þar inn myndir síðan úr Árbæjarsafni. Þar voru teknar ansi magnaðar myndir af sumum á diskógólfinu;);)..
[05.09.08]
Nýnemadjamm!
Þá er loksins komið að því, nýnemadjamm sagnfræðinema verður haldið í kvöld með pompi og prakt! Það hefst með því að allir sagnfræðinýnemar sameinast í hitting hjá kennurum vorum á efstu hæð Nýja Garðs kl 17:00. Þar munu kennarar bjóða upp á léttar veitingar og spjalla við nemendur um daginn og veginn. Þetta er einstakt tækifæri fyrir nemendur að kynnast kennurunum fyrir utan veggja kennslustofunnar og koma kannski inn góðu orði fyrir veturinn.
Við í stjórn Fróða viljum því hvetja alla nýnema í sagnfræði að mæta kl 17 í dag, þar sem reynslan hefur sýnt okkur að það eru yfirleitt þeir sem mæta á nýnemadjammið sem hafa kjark og þor til að mæta á aðra atburði í vetur (með fjölmörgum undantekningum að sjálfsögðu). Nýnemadjammið er því kjörið tækifæri til að kynnast samnemendum sínum, en þau tækifæri gerast varla betri (eða skemmtilegri).
Eftir kennarahittingin munum við svo rölta á barinn ,,okkar" Dillon og skemmta okkur fram á nótt eins og sagnfræðinemum einum er lagið.
Eldri nemendur: Ykkar verður beðið með mikilli eftirvæntingu á Dillon. Því er algjört ,,möst" að þið lítið upp frá bókunum í kvöld, skellið ykkur í spariskóna og mætið á Dillon, en þar verða skælbrosandi nýnemar sem bíða ykkar, er þið þrammið upp stigann um 21:03.
Sjáumst vonandi sem flest í kvöld í spariskapi :) (Það þarf varla að minna á það að bærinn verður stútfullur af nýnemum úr Háskóla Íslands í kvöld og því ættu allir að lyfta sér aðeins upp og skella sér út á lífið:))
Vil einnig minna þá á sem eiga eftir að skrá sig í Fróða að enn er hægt að millifæra 3500 krónur á 0137-26-077080, kennitala 630493-2189 og senda svo póst á frodir@hi.is með staðfestingu. Þið vitið þið viljið vera með ;)
Spenningskveðjur,
Sissó
[25.08.08]
Velkomnir nýnemar og gamlir sagnfræðinemar!
Eins og þið hafið væntanlega tekið eftir, hefur vefurinn verið að komast hægt í gang, en þetta er að allt að koma til enda breytt fyrirkomulag. Vefari síðunnar síðasta skólaárs, Stefán, verður áfram en ég, Alma Sigrún varamaður og Óli gjaldkeri, höfum tekið það að okkur að sjá um að blogga reglulega.
Jæja, vonandi áttuð þið öll gleðilegt sumar. Nú er hinsvegar tíminn til að búa sig undir veturinn framundan og ekki síst allan sagnfræðihittíngin. Í vikunni framundan verður nýnemadjamm með kennurum þann 5.september kl.fimm í Nýja-Garði til sjö og planið er að fylkja liði á bar og hitta þar eldri sagnfræðinema og skemmta sér vel.
Svo þetta er allt að skella á krakkar mínir, en við í stjórninni vonum að þið mætið vel í dagskrána fyrstu dagana – enda gaman að kynnast nýjum krökkum og á nýnemadjamminu og stúdentadögum verður kjörið tækifæri til þessa. Aldur er engin afsökun, og því fjölbreyttari sem hópurinn er, því skemmtilegra verður félagslífið. Allir eru því velkomnir, ungir sem gamlir, pabbar og mömmur, afar og ömmur, svo lengi sem þið eruð í háskólanum :). Viljum einnig segja við sagnfræðinema á öðru og þriðja ári að mæta líka – það er til líf eftir skóla á öðru og þriðja ári líka ;).
Á stúdentadögum þetta árið koma allar deildir saman og skemmta sér í ýmsu tralli. Keppt verður milli deilda í fótbolta og í spurningakeppni. Þá verða kynningar á deildum á Háskólatorgi, og síðast en ekki síst verður slegið upp balli á Brodway þann 5.september. Ballið er tilvalinn staður fyrir okkur öll að koma saman og djamma eftir að kennarar og nemendafélög hafa boðið nýnemum sínum velkomna eins og þeim einum er lagið.
Ef þið, nýnemar, hafið einhverjar spurningar verið ekki feiminn við að hafa ýmist samband við okkur í Fróða eða tala við eldri sagnfræðinema – við erum öll svo cammó í sagnfræði J !
Jæja, þetta verður ekki lengra í bili en set bráðlega inn fulla dagskrá stúdentadaga, en hana er örugglega hægt að ná á vef stúdentaráðs, www.student.is .
Kv. Fróði
( frodir@hi.is )
|