Torfhildur komin með nýja síðu
Vefvist Torfhildar hefur fært sig um set og dvelur nú á http://www.torfhildur.blog.is.

Vefvist Torfhildar hefur fært sig um set og dvelur nú á http://www.torfhildur.blog.is.
Það fór varla fram hjá neinum nemanda í Bókmennta- og málvísindaskor að Torfhildur, ársrit okkar, kom út á vordögum. Ritið er 170 bls og stútfullt af áhugaverðu efni frá okkur nemendum, bæði fræðilegu efni svo og listrænu.
Viðbrögð við Torfhildi hafa verið afar jákvæð. Fjölmiðlar hafa birt misstórar fréttatilkynningar um útgáfuna og hef ég heyrt það út undan mér að Lesbók Mbl. muni jafnvel skrifa smá klausu um efni ritsins.
Nýútkomið er 2. hefti ársins 2007 af TMM þar sem við fáum afar jákvæða klausu frá Silju Aðalsteinsdóttur, ritstjóra:
„Fagnaðarefni var að fá í hendur efnismikið og glæsilegt hefti af Torfhildi, riti nemendafélags bókmennta- og málvísindaskorar við HÍ. Þar má lesa ljóð og smásögur, greinar um kvikmyndir, myndbönd, hljómplötur, bókmenntir og málvísindi og skemmtilegt viðtal ritstjóra, Guðrún Huldu Pálsdóttur, við Andra Snæ Magnason. Það er ekki oft sem maður finnur fjallað á einum stað um Mulholland Drive, Sylviu Plath, Snorra Sturluson og skáldamjöðinn, munúðarfullar hliðar Bjarkar í myndböndum, James Joyce og tvíhljóðunina é>je í íslensku!“
Hananú, við erum fagnaðefni gott fólk. Fögnum okkur!
Málþing meistaranema í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands verður haldið föstudaginn 27. apríl kl. 13.30 – 17.00 í stofu 101 í Odda
Dagskrá:
Kl. 13.30 – 15.00 Fyrri málstofa
-Guðrún Hulda Pálsdóttir: 'Ársrit Torfhildar: Kynning.'
-Davíð Kjartan Gestsson: „Illgjarna tungan í svartholinu: Greining á
´Cahier d'un retour au paysnatal´ eftir Aimé Césaire.'
-Guðrún Dröfn Whitehead: 'Hirðfífl hans hátignar: Hið sérkennilega
aðdráttarafl Rochesters lávarðs.'
-Soffía Bjarnadóttir: 'Síbreytilegt hold tímans: Líkami, dauði og list.'
Kl.15.00 Kaffihlé
Kl. 15.30 – 17.00 Síðari málstofa
-Símon Hjaltason: 'George Orwell: Saga, sannleikur og sósíalismi.'
-Svanhvít Lilja Ingólfsdóttir: 'Kynjahlutverk sólar og mána.'
-Helgi Sigurbjörnsson: '´Brýt höfuð, tengi brot við brot.´' Um Brotahöfuð
eftir Þórarin Eldjárn.'
Veitingar og spjall á eftir
ALLIR VELKOMNIR!
Stuttar efnislýsingar erinda:
Davíð Kjartan Gestsson (dkg@hi.is): 'Illgjarna tungan í svartholinu: greining á ´Cahier d'un retour au pays natal´ eftir Aimé Césaire.' Aimé Césaire er eitt af höfuðskáldum og hugmyndasmiðum Négritude, stjórnmála- og bókmenntahreyfingar frönskumælandi blökkumanna. Fyrsta ljóð hans, ´Cahier d'un retour au pays natal´, kom út árið 1939 og markaði tímamót í vitundarvakningu blökkumanna á nýliðinni öld. Í ljóðinu er hryllilegum afleiðingum nýlendustefnunnar lýst og ljóðmælandi þarf að takast á við bælingu sína og jaðarstöðu í frönsku þjóðfélagi sem og í heimalandi sínu.
Guðrún Dröfn Whitehead (gdw@hi.is): 'Hirðfífl hans hátignar: Hiðsérkennilega aðdráttarafl Rochesters lávarðs.' Rochester lávarður var breskt skáld uppi á 17. öld. Hann var einn af uppáhalds hirðmönnum Karls II. konungs vegna hispurslausra lýsinga á samtímamönnum og samfélagi í verkum sínum. Meðal aðdáenda hans voru Goethe, Tennyson og Voltaire sem allir gátu vitnað í verk hans. Í erindinu verður sérkennilegt aðdráttarafl hans kannað.
Soffía Bjarnadóttir (matarsodi@gmail.com): 'Síbreytilegt hold tímans: Líkami, dauði og list.' Líkaminn er hér til skoðunar sem söguleg og menningarleg smíð. Líkaminn, sem er miðlægur í mannlegri tilveru, tengir okkur við tíma og dauða og merkir þversagnakenndar aðstæður mannsins. Í erindinu verða skoðuð nokkur dæmi um líkamann í listinni.
Símon Hjaltason (sih5@hi.is): 'George Orwell: Saga, sannleikur og sósíalismi.' Erindið byggir á B.A.-ritgerð höfundar sem fjallar um stöðu Orwells í nútímasögu, afstöðu hans sjálfs til hlutlægs sannleika og framlag hans til sósíalisma. Farið verður yfir nokkur æviatriði Orwells, fjallað um helstu skáldsögur hans, Animal Farm og 1984, og dregin upp mynd af hugmyndaheimi hans eins og hann birtist í skrifum af ýmsu tagi.
Svanhvít Lilja Ingólfsdóttir (sli@hi.is): 'Kynjahlutverk sólar og mána.' Í germönskum tungumálum er heiti sólar í kvenkyni en heiti mána í karlkyni og hugmyndir okkar um þau eftir því. Þessu er öfugt farið í Suður-Evrópu, þar sem sólin er voldugur konungur og máninn dulúðug gyðja. Fjallað verður um menningarlegar, málfræðilegar, trúarlegar og jafnvel veðurfarslegar ástæður fyrir þessum kynjahlutverkum sólar og mána í Evrópu og víðar.
Helgi Sigurbjörnsson (hes6@hi.is): '´Brýt höfuð, tengi brot við brot.´ Um Brotahöfuð eftir Þórarin Eldjárn.' Í Brotahöfði er rakin saga Guðmundar Andréssonar, lærdómsmanns og samviskufanga á 17. öld. Guðmundur er þekktastur fyrir að hafa dottið út um glugga á Bláturni, einu rammgerðasta fangelsi Dana, og lent á hallarþaki konungs. Brotahöfuð líkist sjálfsævisögum í byggingu en saga Guðmundar eins og hún er rakin í Brotahöfði á sér einnig samsvörun í ævisögu séra Jóns Steingrímssonar eldklerks.
Torfhildur, nemendafélag bókmenntafræði- og málvísindaskorar Háskóla Íslands, boðar til hófs í tilefni af útgáfu menningartímaritsins Torfhildur.
Um er að ræða hátt í tvöhundruð síður fylltar ljóðum, smásögum, viðtali og greinum tengdum listum og menningu - allt unnið af nemendum skorarinnar, utan heiðursgreinar prófessors og velunnara.
Á dagskránni verður frumsýning Torfhildar, nokkrar tölur og ef til vill eitthvað fleira skemmtilegt...
Útgáfuhófið verður haldið miðvikudaginn 18. apríl kl. 20.00 í Stúdentakjallarnum við Hringbraut og verða veigar í boði á meðan byrgðir endast!
Gestum verður boðið að kaupa Torfhildi á vægu frumsýningarverði.
Við hvetjum alla núverandi og fyrrverandi nemendur skorarinnar sem og kennara og aðra áhugasama til að mæta á þessa miklu uppskeruhátíð ritnefndar Torfhildar!
Sæl öll!
Nemendafélag bókmenntafræði – og málvísindaskorar heldur aðalfund, föstudaginn 20. apríl kl. 20:00 á Barnum (3. hæð), Laugavegi 22 (tilboð á barnum).
Dagskrá fundar:
- farið yfir starfsárið
- kosið í stjórn fyrir skólaárið 2007-2008
Kosið er í eftirfarandi stöður:
Formaður
Ritari / varaformaður
Gjaldkeri
Ritstjóri torfhildar (þ.e. Torfa og ársrits)
Tveir meðstjórnendur
Tveir meðlimir í ritnefnd
Skorarfulltrúi
Deildarfulltrúi
Vefstjóri
Þeir sem eru áhugasamir um að bjóða sig fram hafi samband við núverandi formann, Emil Hjörvar Petersen, á netfangið emil@hi.is. Einnig er hægt að bjóða sig fram á sjálfum fundinum.
Kveðjur,
Sæl öll!
Á þetta verðum við öll að mæta!
Málþing Torfhildar hafa alltaf verið mjög vel heppnuð og skemmtileg. Mikill undirbúningur hefur verið lagður í það, og núna verðum við að leggjast öll á eitt og tryggja góða mætingu. Erindin eru mjög áhugaverð. Þetta verður stórskemmtilegt.
Málþing Torfhildar: Súrrealismi
Torfhildur, félag nemenda við bókmenntafræði – og málvísindaskor Háskóla Íslands, efnir til málþings um súrrealisma. Það fer fram næstkomandi föstudag, 13. apríl, klukkan 15:00 í stofu 101 í Odda.
Dagskrána prýða eftirfarandi erindi:
Sjón:
'Reikistjörnuveiðar á þríhjólum'
Sigurður Pálsson:
'Lífseigla súrrealismans'
Hanna Guðlaug Guðmundsdóttir:
'Myndir úr undirmeðvitund. Ljósmyndun og súrrealismi'
Emil Hjörvar Petersen:
'Júsæjaló júsæ; Dada – súrrealismi – vonlenska'
Stuttar umræður eru eftir hvert erindi og boðið verður upp á súrrealískt kaffi í hléi.
Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir!
Bestu kveðjur,
Sæl öll!
Næsta föstudag, 30. mars, mun Morgunblaðið bjóða okkur í vísindaferð.
Mæting er kl 17:00 upp í Hádegismóa 2 (köflótta húsið við Rauðavatn).
Aðeins 20 komast að og skráning er í kommentakerfinu hér fyrir neðan. Þau 20 fyrstu sem skrá sig, með nafni, komast í ferðina.
Síðan er tilvalið að gera eitthvað skemmtilegt eftir á. Kíkja á barinn eða halda partí og þar fram eftir götunum.
----Uppfært á föstudag: Við höfum fengið 10 aukasæti, endilega skráið ykkur!-----
Bestu kveðjur,
Sæl verið þið.
Ljósmyndirnar frá árshátíðinni eru komnar á netið, en við höfum breytt um hýsingu þeirra og munum héðan í frá notast við Flickr.
Sæl öll!
Núna á föstudaginn, 16. mars, mun Edda útgáfa bjóða okkur í vísindaferð.
Athugið! Fyrirtækið hefur flutt sig um set, og er núna til húsa í Síðumúla 28. Mæting þar er stundvíslega kl. 17:00.
Við í bókmenntafræði- og málvísindaskori erum með 25 sæti. Þannig að það eru einungis 25 sem komast að :)
Skráning er í kommentakerfinu. Þeir 25 fyrstu sem skrá sig, með nafni, komast í ferðina.
Síðan er tilvalið að gera eitthvað skemmtilegt eftir á. Kíkja á barinn eða halda partí og þar fram eftir götunum.
Bestu kveðjur,
Sæl verið þið.
Ég vil bara benda á það að fleiri myndir hafa bæst í myndaalbúmið - sem legið hefur í dvala í rúmlega ár - og að þið megið búast við fleiri myndum þangað í náinni framtíð, meðal annars frá ónefndri árshátíð síðar í þessari viku. Sláið því út árshátíðarmyndirnar frá í fyrra; verið örlát á grettur og asnalegheit þegar myndavélin beinist að ykkur um föstudagskvöldið.
Kveðja,
Hæhæ!
50 manns hafa skráð sig, og skráningarfrestur er útrunninn! Þetta er bara slatti af fólki, sem er frábært, þetta verður gaman.
Stjórnarmeðlimir Torfhildar verða á neðstu hæð Árnagarðs á morgun og hinn, þ.e. miðvikudag og fimmtudag, frá kl. 10 - 13, báða dagana. Þá er hægt að nálgast miðana.
Einungis er hægt að greiða með reiðufé. Munið að það er hraðbanki í Odda, bara þarna rétt hjá.
Eftir matinn á föstudaginn höldum við árshátíðargestir í partí, þar sem verður húllumhæ og veigar í boði, þangað til við fermum okkur yfir á ballið.
Mæting á föstudaginn er kl. 19:30 í sal á Hótel Sögu, sem ber heitið 'Skáli'. Borðhald hefst klukkan 20:00.
Sjáumst kát og hress!
p.s. Ef það eru einhverjar spurningar, hringið í formann Torfhildar, í síma 869-8391 (Emil)
p.s.s. Ef þið lumið á einhverjum skemmtiatriðum, endilega látið ljós ykkar skína.
Bestu kveðjur,
Sælir samnemendur!
Nú er komið að árshátíð nemenda við bókmenntafræði- og málvísindaskor. Árshátíðin verður haldin föstudaginn 9. mars næstkomandi á Hótel Sögu, í sal sem kallast Skáli. Torfhildur hefur ákveðið að koma talsvert á móti kostnaði við árshátíðina, og kostar því einungis 2500 krónur fyrir þá nemendur sem skráðu sig í nemendafélagið okkar á haustönn. Fyrir þá sem eru fyrir utan nemendafélagið kostar 3000 krónur (sama verð er fyrir maka).
Miðinn á árshátíðina gefur ykkur þetta:
- Stórskemmtilega árshátíð á Hótel Sögu
- Dýrindis mat (matseðillinn er hér fyrir neðan)
- Frítt á Hugvísindaballið sem er síðar um kvöldið. Það hefst kl. 12, og
er í Sunnusal á Hótel Sögu.
- Partí á milli matarins og ballsins, þar sem veigar verða í boði
Til þess að skrá sig á árshátíðina skal senda póst á þetta netfang, emil@hi.is. Frestur til þess að skrá sig er til kl. 11:00 (um morguninn) þriðjudaginn 6. mars. Nánar verður auglýst hvenær er hægt að nálgast miðana (það verður eftir þriðjudaginn, og verður stjórnarfólk úti í Árnagarði). Einnig er hægt að skrá sig í kommentakerfinu hér að neðan.
Við skráningu skal taka fram hvort þið séuð skráð í nemendafélagið og eigið félagsskírteini. Það er auðvitað leyfilegt að bjóða mökum með, en verð fyrir þá er 3000 krónur eins og hefur verið tekið fram. Ef þið hafið sérstakar óskir um að fá grænmetisrétt, látið einnig vita við skráningu.
Matseðill árshátíðarinnar:
- Forréttur: Blackeraður lax á steinseljurótarmauki með teriyakisósu og
stökku kryddjurtasalati
- Aðalréttur: Kryddjurtalegið lambaprime með kartöflukóngasveppalögum og
´confit´-elduðu haustgrænmeti
- Eftirréttur: Súkkulaðipýramídi með nougatfyllingu og pistasíusírópi
ATH! Tofhildur auglýsir eftir skemmtiatriðum fyrir árshátíðina. Sendið póst á emil@hi.is ef þið hafið eitthvað skemmtilegt í pokahorninu. Hvetjum ykkur eindregið að koma með skemmtiatriði svo árshátíðin geti verið sem skemmtilegust!
ATH! ATH! Svo er það að mæta! Þetta verður stórskemmtilegt! Skrá sig!
Árshátíðarkveðjur,
Málþing Torfhildar: „Uppskrift að höfundi“
- plús kökubasar í boði Torfhildar!
Nú er komið að viðburði sem allir nemendur í bókmenntafræði- og málvísindaskori verða einfaldlega að mæta á. Mikil stemning hefur verið fyrir þessu síðastliðin misseri, og það verður sko ekki látið undan því núna.
Föstudaginn næstkomandi, þann 17. nóvember, höldum við málþing annarrinnar, en þemað núna er um höfundinn. Málþingið byrjar klukkan 15:00 og verður í stofu 101 í Odda (það er ansi magnað að við fengum þessa stofu, og þessvegna verða einfaldlega allir að mæta!).
Kaffi og kökur og allskonar verða í boði Torfhildar. Við erum að tala um allskyns heimabakað gums: skúffu- gulrótar- bláberja- marengs- eplakökur o.fl.
Dagskráin er eftirfarandi
- Hallgrímur Helgason: „Lesandinn er slappur, bókin er veik en höfundurinn
hress“
- Hávar Sigurjónsson: „Höfundurinn í leikhúsinu“
- Rúnar Helgi Vignisson:„Egill spegill: Rúnar Helgi Vignisson heilsar upp
á Egil Grímsson“
Úr röðum nemenda:
- Arnar Sigurðsson og Atli Bollason: „01 - [Atli og Arnar] - Höfundurinn
feat. Barthes/Foucault - PoMo REMIX.mp3“
- Tinna Mjöll Karlsdóttir kemur með óvænt innslag um höfundinn út frá
femínísku sjónarhorni
Þetta er glæsileg og áhugaverð dagskrá. Hvað getur verið betra en að eyða föstudagseftirmiðdegi á meðal nemenda að hlusta á áhugaverð erindi frá áhugaverðu fólki og úða í sig sætindum? (gerir maður hvort eð er eitthvað annað á föstudagseftirmiðdegi?)
Við hlökkum til að sjá ykkur öll!
Bestu kveðjur,
Núna á föstudaginn, þann 10. nóvember, förum við í ferð í Listasafn
Íslands. Við skoðum sýninguna sem þar er í gangi þessa stundina, þ.e.
málverkið eftir 1980.
Mæting er klukkan 15:00 á safnið. Alls komast 50 manns í ferðina.
Fjölmennum því þetta er eflaust frábær sýning!
Kveðjur,
Sæl öll
Enn vantar einn nemanda til þess að vera með erindi á málþingi Torfhildar
föstudaginn 17. nóvember. Sá nemandi þarf helst að vera kvenkyns. Hafið nú
samband!
s: 869-8391 (Emil)
Kveðjur,
Sæl öll
Torfhildur mun halda málþing föstudaginn 17. nóvember næstkomandi kl. 15:00. Sú hefð skapaðist á síðasta ári að halda eitt slíkt á hverri önn, hvert með sérstaka yfirskrift. Á málþingunum er reynt að stefna saman kennurum, menningarfrömuðum, rithöfundum og nemendum. Úr röðum nemenda eru oftast tveir með stutt erindi um viðfangsefnið. Síðan eru 4-5 'prófessjónal' framsögumenn.
Málþingin hafa vakið mikla lukku og er þetta
því einstakt tækifæri og góður vettvangur til að sýna hvað í manni býr.
Hér með auglýsum við eftir 2 framsögumönnum úr röðum nemenda!
Efni málþingsins er um höfundinn. Endanleg yfirskrift er ekki komin, en á málþinginu verður vonandi tekið á allskyns vangaveltum um þetta efni (en ef einhver kemur með skemmtilegan vinkil á hlutina, er allt opið - þessir punktar eru bara til að styðjast við):
- Er höfundurinn dauður eða lifandi?
- Mörk persónulegs höfundar og söguhöfundar.
- Höfundurinn gagnvart verki sínu þegar það er meðhöndlað, með ritstýringu
eða leikstýrt í leikrit eða kvikmynd.
- Á höfundurinn að gera sig að opinberri persónu og tjá sig um sín eigin
verk og annarra?
- Opinber bókmenntaumræða gagnvart höfundinum. Einkennist hún af
persónudýrkun en ekki einbeitingu á textann sjálfan?
- Markaðurinn gagnvart höfundinum. Er það nafn og andlit höfundar sem
selur, framyfir skáldverkið sjálft?
Ef þið hafið hugmyndir eða langar að taka þátt, endilega hafið samband við Emil í emil@hi.is eða í síma 869-8391. Stjórn Torfhildar velur svo tvo framsögumenn, sem verða fulltrúar nemenda á málþinginu.
Hafið endilega samband!
Bestu kveðjur,
Nýhil bað okkur um að koma þessu til leiðar
Þremur nýjum skáldsögum ungra höfunda fagnað!
Félagsskapurinn Nýhil hefur á síðustu árum verið í fararbroddi í nýsköpun í íslenskum bókmenntum og vakið athygli fyrir metnaðarfulla útgáfu á ljóðum skálda af yngri kynslóðinni. Fyrir þessi jól færir Nýhil út kvíarnar og gefur út skáldsögur eftir þrjá unga höfunda, alla fædda árið 1978. Útgáfan hefur þegar vakið athygli fyrir krassandi innihald og óhefðbundin frágang.
Útgáfunni verður fagnað með lúðrablæstri á Þjóðleikhúskjallaranum fimmtudagskvöldið 2. nóvember. Húsið opnar klukkan 20:00 en dagskrá hefst 20:30, og lesa höfundar úr verkum sínum:
* Haukur Már Helgason: Svavar Pétur og 20. öldin
* Bjarni Klemenz: Fenrisúlfur
* Eiríkur Örn Norðdahl: Eitur fyrir byrjendur
Meðlimir hljómsveitarinnar múm spila ljúfa tóna af skífum og kynnir er Ingibjörg Magnadóttir. Óttar Martin Norðfjörð kynnir að auki væntanlega ljóðabók sína og 1. fyrsta bindi ævisögu Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar.
Nemendur í Hugvísindadeild eru boðnir sérstaklega velkomnir að mæta tímanlega og þiggja léttar veitingar á meðan birgðir endast. Jafnframt bjóðum við þeim að festa kaup á skáldsögunni á afar góðu verði, eða 2.500,- per stykki.
Ritnefnd Torfa auglýsir eftir manneskju(m) til aðstoðar við útgáfu ársrits Torfhildar.
Ársrit Torfhildar hefur ekki komið út síðan 1991 og er stærsta markmið ritnefndar að koma út vönduðu og eigulegu ársriti. Ef þið hafið einhverja reynslu af auglýsingasölu eða útgáfu blaða (skólarita, ársrita..) að einhverju leyti þá væri aðstoð ykkar vel þegin. Þið getið náð í Guðrúnu í ghp2@hi.is. eða í s. 698-2367.
Nýr Torfi kemur út á fimmtudag. Honum er dreift á töflur, borð, kaffistofur og allsstaðar þar sem hann kemst fyrir í Árnagarð og Odda.
Minni ykkur líka á að alltaf er hægt að senda inn efni í Torfa!!
Ég var í dag beðinn um að koma eftirfarandi auglýsingu til ykkar
---------
Stefnumót við rithöfundinn Michael Ondaatje er síðasti liðurinn á dagskrá Kanadískrar menningarhátíðar í Kópavogi sem nú stendur yfir. Stefnumótið fer fram í Salnum sunnudaginn 22. október kl. 13-14. Ljósi verður brugðið á höfundarverk hans í spjalli við Gunnþórunni Guðmundsdóttur, aðjunkt í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands, sem m.a. hefur sérhæft sig í verkum Ondaatjes.
Einna þekktast verka Ondaatjes er skáldsagan The English Patient sem síðar var kvikmynduð og vann til fjölda Óskarsverðlauna. Stefnumótið er öllum opið og aðgangur er ókeypis. Dagskráin fer fram á ensku. Í beinu framhaldi, eða kl. 14.15, verður kvikmyndin The English Patient sýnd í Salnum og mun Ondaatje flytja stutt inngangsorð.
Nánari upplýsingar um aðra dagskrá Kanadískrar menningarhátíðar á www.kopavogur.is
Bendi einnig á áhugavert málþing sem haldið verður í Salnum laugardaginn 21. október kl. 10-13. Þar verður fjallað um menningu frumbyggja og landnema í Kanada og samskipti þeirra í fjölda áhugaverðra erinda. Málþingið er haldið í samstarfi við ReykjavíkurAkademíuna.
----------
Vísindaferðin verður föstudaginn næstkomandi, 20.október, í útibúinu að Hafnarstræti 5, á þriðju hæð. Byrjar stundvíslega klukkan 17:00 (mætið helst svona 5-10 mín fyrr). Vísindaferðinni lýkur um 19:00.
Skráning er hér í kommentakerfinu fyrir neðan (einskorðið kommentin við skráningar, en segið líka ef þið eruð til í eitthvað eftir á, við viljum hafa hugmynd um fjölda ykkar).
Vísindakveðjur,
Látið orðið berast. Dustið rykið af bookmarkinu. Fylgist með þessari síðu, því hér munu á næstu misserum birtast mikilvægustu fréttir sem lærdómstroðnir hugar ykkar eiga eftir að lesa.
Eða þá slúður. Ég veit það bara ekki, þessi nefnd getur verið svolítið ófyrirsjáanleg.
P.S. Ef einhver hefur áhuga á að bæta blóki sínu við skrána hér til hliðar má sá hinn sami senda mér póst á aoe1@hi.is. Allar aðrar ábendingar líka vel þegnar.
Mér var að berast orðsending frá dularfullum manni sem talaði í viðtengingum, reið húsum og baðaði út höndunum einsog hann væri að hvíslast á við herþotur. Sjáið þetta hér:
_____
Upprisukvöld Nykurs
Árið 1995 var Nykur stofnaður af nokkrum ungum skáldum sem bókmenntavettvangur og sjálfshjálparbókarforlag. Á vegum Nykurs komu fyrstu verk skálda og rithöfunda á borð við Andra Snæ Magnason, Davíð A. Stefánsson, Steinar Braga, Ófeig Sigurðsson og fleiri. Alls komu út 13 bækur á vegum Nykurs til ársins 2003, en þá fór hann aftur í tjörnina og beið færis.
Nú, þremur árum síðar, hefur stokkast upp og fjölgað í mannafla Nykurs. Yngri skáld hafa bæst í hópinn og flóran orðin meiri. Í kvöld mun Nykurinn koma aftur upp á yfirborðið, tvíefldur og með ferskan blæ. Frá og með þessum tímapunkti mun Nykur verða nýtt skálda- og bókmenntaafl á Íslandi. Með haustinu munu koma út bækur nokkurra skálda undir merkjum Nykurs.
Upprisukvöldið mun fara fram á Cafe Rósenberg miðvikudaginn 28. júní kl. 22:00.
Skáldin munu lesa upp úr frumsömdu efni, en á milli þess verður farið yfir hvað Nykur hefur gert og hver framtíð hans er.
Nykurskáld að þessu sinni verða:
Arngrímur Vídalín,
Davíð A. Stefánsson,
Emil Hjörvar Petersen,
Kári Páll Óskarsson og
Urður Snædal
Kynnir verður Hildur Lilliendahl og sérstakur gestalesari verður Ingibjörg Haraldsdóttir. Allir velkomnir og aðgangur er ókeypis.
Nykraðar kveðjur!
Fyrir nánari upplýsingar: Emil Hjörvar Petersen, 869-8391.
_____
Nú, þegar hitamollan slæðist undir handleggina á okkur. Nú, þegar Hummerinn leggur í öryrkjastæði. Og nú, þegar snögg hróp barna óma úr runnum vegna býflugna, er komið að því. Það er komið að því að við skeinum af okkur prófglákuna, komum saman og berum saman hitamolluna undir handakrikanum. Það er kominn tími á próflokapartý.
Að þessu sinni verður gamanið á exótískum stað. Svo exótískum, að hundraðogeinn munu verða jafn lost og handritshöfundarnir af Lost.
Nýr formaður Torfhildar, hann Emil Hjörvar Petersen, mun bjóða í próflokapartý. Emil á heima í Kópavogi, nánar tiltekið í Álfaheiði 42 (hverfið á móti Hjallakirkju; hvítt hús fyrir ofan leikskólann. Emil verður með jólasveinahúfu og mun halda á íslenska fánanum). Látið ekki bæjarmörk stöðva ykkur! Komiði í fjandans partý!
Nú kemur dagsetning og tímasetning: Laugardagurinn 13. maí og gamanið byrjar klukkan 21:00.
Emil átti afmæli fyrir stuttu, þ.e. þann 7. maí (gjafir eru ekki issjúið .. bara, Emil langar að gera sér dagamun). Emil er líka í framboði fyrir VG. Emil langar að slá þessu bara öllu saman, svona svipað eins og þegar Arnaldur Svartnaggur fékk sér að borða í stórmyndinni End of Days. Troða öllu í hrærivél og ýta á plei. Þannig að þetta verður svona ,,próflokaafmælisexvaffpartý". Vonandi verður enginn fúll þó slæðingur verði af fólki sem ekki hafa lesið Dostójevskí eða Murakami. Við verðum að læra að gefa svona fólki séns, ... bara kommon, skiljiði.
Emil ætlar að bjóða upp á bjór. Ókeypis. Endurtekið: ókeypis. Endurtekið aftur fyrir sjónskerta: Ó K E Y P I S. Takið sérstaklega vel eftir orðunum ,,bjóða" og ,,ókeypis". En birgðir endast ekki endalaust. Þannig að það er gullna reglan: FYRSTUR KEMUR, FYRSTUR FÆR. Þannig að ef einhver ætlar að koma eitthvað mikið seint, er ráðlegt að taka með sér nesti.
Allir velkomnir!! (eða þú veist, innan ákveðins ramma ... þið skiljið ... við viljum ekki fá Gillzenegger inn ... eða fólkið sem kemst í VIP röðina á Óliver .... en þú veist, allir mega koma sem telja sig á einhvern hátt flokkast undir þann markhóp sem þetta boð nær til. Þó að bókmenntafræðinemi - eða menningarfræðinemi, eða kvikmyndafræðinemi, eða táknmálsfræðinemi (o.fl. o.fl.) - sem les þetta hafi aldrei hitt Emil til dæmis, er hann meira en velkominn ... en viðkomandi verður að koma í tæka tíð til þess að fá fría kalda ölið niður í kokið).
Kveðja,
Hér er tilkynning frá aðstandendum fyrirhugaðrar nemendaráðstefnu:
-----
Laugardaginn 29. apríl halda nemendur í Almennri bókmenntafræði sína árlegu vorráðstefnu. Fer hún að þessu sinni fram í Fyrirlestrasal Öskju (132 - Stofa 1) og hefst klukkan 13:00 og stendur til 17:00. Flutt verða erindi byggð á B.A.-ritgerðum, M.A.-ritgerðum og rannsóknarverkefnum meistaranema.
Dagskráin er sem hér segir:
Kl. 13:00-14:30 — Fyrri málstofa
14:30-15:00 — Kaffi
15:00-17:00 — Síðari málstofa
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir!
Nánari upplýsingar á http://www.hi.is/~gthj/nemendaradstefna.htm
-----
..og það er sko ekkert djók, þarna eru í alvörunni nánari upplýsingar.
Ráðstefnan á síðasta ári vakti mikla lukku og þetta lítur allsekki verr út núna. Ekta tækifæri til að sjá hvað fólkið í kringum ykkur er að spá.
Torf-a vantar efni fyrir seinasta blað annarinnar. Velunnarar og áhugasamir sendið okkur hvað sem er. Rífið upp pennanna og sýnið hvað í ykkur býr. Torf-i vill ykkur!
Efni sendist á: emil@hi.is eða ghp2@hi.is.
Hann Kristján B. Jónasson á Eddu útgáfu vildi koma þessu á framfæri við ykkur:
Allir sem eru að yrkja í bókm.fræði og öðrum hugvísindagreinum geta sent inn ljóð í Sigurskáldið 2006 á ljod@edda.is - komist þeir í 8 liða úrslit verður ljóðið þeirra birt í Fréttablaðinu og fjallað um höfundinn í leiðinni auk þess sem lestur á ljóðinu verður tiltækur á mp3 formi á visir.is. Síðan gefst öllum kostur á að blanda sér sem allra mest í málið og velja þau ljóð sem þeim líst best á í símkosningu þannig að í viku bókarinnar verður þjóðin að taka afstöðu til ungskáldanna og lesa ljóð með morgunkaffinu. Skilafrestur er til 5. apríl en þá á miðnætti rennur fresturinn út.
Þið munið væntanlega eftir samskonar keppni sem var haldin í hittifyrra.. og getið lesið meira um þetta á Eddu.
Athugið allir nemendur í Bókmennta-og málvísindaskor! Upplýsingar þessa bréfs koma öllum við.
Aðalfundur Torfhildar var haldinn þann 24. mars kl.13. Á þeim fundi átti að ákveða nýja stjórn fyrir veturinn 2006-2007. Þessu áætlunarverki var ekki framfylgt. Hins vegar voru gerðar tillögur um breytingar á reglum félagsins og fylgja þær þessari tilkynningu. Næsti fundur verður síðan haldinn 5. apríl þar sem nemendur geta mætt og mótmælt þessum breytingum eða gert athugasemdir. Einnig verður fólki boðið að bjóða sig fram í stjórn á þessum fundi.
Fyrsta tillagan var að breyta grein 1.1 í lögum Torfhildar sem segja: Félagið heitir Torfhildur, félag bókmenntafræðinema við Háskóla Íslands.
Í staðinn á félagið að vera félag nemenda við bókmennta- og málvísindaskor en það þýðir að við Torfhildi bætast við nemendur í málvísindum, listfræði, menningarfræði, kvikmyndafræði, táknmálsfræði, þýðingarfræði o.s.frv.
Í tilefni af þessari breytingu verður boðið upp á að endurnefna félagið
svo það geri grein fyrir öllum þeim mismunandi fögum sem það stendur
fyrir.
Þeir sem hafa tillögur geta lagt þær fram hér á síðu Torfhildar.
Í framhaldi mun grein 1.2 verða breytt í lögum Torfhildar: Tilgangur félagsins er að koma fram fyrir hönd bókmenntafræðinema, vinna að hagsmunum þeirra og sjá um almennt félagslíf.
Í staðinn mun félagið koma fyrir hönd allra nemenda í skorinni og vinna að hagsmunum þeirra og almennu félagslífi.
Ég hvet alla til að mæta sem hafa eitthvað til málanna að leggja og vilja taka þátt.
Það má finna frekari upplýsingar um lög og starfsemi Torfhildar á heimasíðu okkar og ef einhverjar spurningar vakna endilega sendið mér fyrirspurn á thg2@hi.is
Tími og staður fyrir næsta fund 5. apríl verður auglýst þegar nær dregur.
Kær kveðja,
Sælir kæru samnemendur
Þá er komið að honum, aðalfundi Torfhildar, og ég hvet alla sem vilja vera með á næsta ári, hvort sem þeir vilja bara hjálpa eða vera í stjórn, að mæta.
Fundurinn er á morgun (föstudag) kl.13 í Lögbergi 203.
Það er mikilvægt að bókmenntafræðinemar taki sig saman og efli félafslífið. Þess vegna er áriðandi að fólk sýni lit og mæti á fundinn.
Sjáumst þar,
Hún Nanna bað mig um að auglýsa þetta fyrir ykkur..
Þögnin rofin.
Rjúfum Þögnina.
Mánudagur, 20. mars.
Stórtónleikar til styrktar ,,blátt áfram''.Næstkomandi fimmtudag, 23. mars verða haldnir stórtónleikarnir ,,Þögnin rofin" á Nasa.
Tónleikarnir eru til Styrktar Blátt áfram.
Fram koma: - Úlpa - Leaves - Brain police - Vínyll - days of our lives - Sólstafir - Mammút - Lokbrá - Margeir - eskimo. Kynnir kvöldisins er Davíð Þór.Þetta er frábært málefni og allir sem koma að þessu er að gefa vinnuna sína. Það er ótrúlegt hvað folk er tilbúið að hjálpa þegar á reynir og flestir hafa gert allt sem á þeirra valid stendur til að leggja þessu mikilvæga málefni lið.
Þú getur fengið frekari upplýsingar á heimasíðu okkar www.blattafram.blogspot.com.
Sunnudaginn 26.mars er bókmenntafræðinemum boðið tilboð á sýninguna Glæpur gegn diskóinu. Við fáum miðann á 1.500 í staðinn fyrir 2.900 sem þykir nokkuð gott. Einnig hefur okkur verið boðið að hafa umræður með leikurunum eftir sýninguna.
Skráning er hafin nú þegar. Smellið hér.
Fyrir þá sem vilja vita meira..
Glæpur gegn diskóinu er stórkostleg sýning sem hlotið hefur einróma lof
gagnrýnenda og áhorfenda:
“Leiklist í sinni einföldustu og tærustu mynd. Fimm stjörnur af fimm.”- Valgeir Skagfjörð gagnrýnandi Fréttablaðsins.“Það er að sumu leyti ósanngjarnt að draga einhvern þeirra félaganna út úr, svo jafngóð er frammistaða þeirra. –Skemmtilegt kvöld.”- Páll Baldvin Baldvinsson gagnrýnandi DV.“Undir styrkri stjórn ... skilar hópurinn prýðis skemmtun, þetta er grafalvarlegur undirtónn sem deilir á ofbeldi og kúgun í bland við heilmikið grín og geðveiki.”- Kristrún Heiða Hauksdóttir gagnrýnandi Kistan.is
Glæpur gegn diskóinu er geysilega vel skrifað leikverk. Um er að ræða þrjú eintöl sem segja sögu þriggja manna sem atvikin leiða saman. Þessir sérkennilegu og ólíku einstaklingar virðast ekki eiga neitt sameiginlegt, en eftir því sem líður á frásagnir þeirra kemur í ljós að annarlegt ástand þeirra má rekja til eins atburðar frá því að þeir voru saman í skóla. Við fylgjumst með þeim reyna að slíta þessi bönd sem halda aftur af þeim og komast yfir þennan atburð sem hafði svona mikil áhrif á þá alla.
Verkinu er skipt niður í þrjá hluta og er hlé eftir hvert eintal þar sem gestir geta farið fram og fengið sér veitingar hjá veitingasölu Borgarleikhússins.
Í dag bárust mér tvær auglýsingar sem ég var beðinn um að koma til ykkar. Þetta eru uppákomur sem verða á morgun og hinn, sko hér:
Bókmenntakvöld!
Mikil gleði og hamingja!
Endurreisn fagurfræðinnar!Þann 20. Mars kl. 21:30 munu nokkrir ungir og metnaðarfullir höfundar lesa upp úr verkum sínum á café Babalú, Skólavörðustíg. Hér verður öðruvísi efni á boðstólum en boðið hefur verið uppá hér í bæ að undanförnu, bæði innblásið og vandað.
Allir velkomnir!
..og hér:
Aðfaranótt laugardagsins 18. mars kom Huldufólkið til okkar og átti við okkur nokkur orð. Örvæntingin leyndi sér ekki í rödd þeirra. Hún hvíslaði: Hvað verður um okkur? Hjartslátturinn barðist um í brjóstum þeirra. Þegar við heyrðum þessi orð áttuðum við okkur á beiðni þeirra. Ósýnilega litla fólkið þurfti að láta rödd sína heyrast áður en útrýmingin hæfist fyrir alvöru.Í nafni Huldufólksins boðum við til málefnakvölds í Stúdentakjallaranum þriðjudaginn 21. mars klukkan 20:00.
Yfirskrift kvöldsins er: Brjálæði eða orkuþörf?Flutt verða erindi með og á móti virkjunum:
Kolbrún Halldórsdóttir (VG), Þorsteinn Hilmarsson (Landsvirkjun), fulltrúi www.savingiceland.org, Ragnhildur Sigurðardóttir (vísindamaður) og fleiri.Mætið og segið skoðun ykkar!
Umræður og upplýsingar,
spurningar og svör.Munið Stúdentakjallarann þriðjudaginn 21.mars kl. 20.00!
kv. Háskólaskáldin (Björk,Gunnar og Berglind s:6905122)
Og það var allt í bili.
Málþing bókmenntafræðinema hefst kl. 15:00 á morgun í stofu 111 í Aðalbyggingu og ég hvet alla bókmenntafræðinema að mæta. Þemað er íslenskir kvenrithöfundar og verk þeirra.
Um kvöldið er síðan dagskrá í Hljómalind kl. 21:00.
Ath! Áður var auglýst að
þetta yrði á Kaffi Kúltúra en staðsetningin hefur breyst. Þar munu ýmsir
lesa upp úr verkum íslenska kvenrithöfunda.
Þaðan verður svo haldið í partý en það verður auglýst á staðnum.
Lesið hér tilkynningu frá ástkærum formanni vorum:
-----
Kæru bókmenntafræðinemar! Nú fer að koma að því! Veturinn er að líða undir lok og þá mun Torfhildur halda aðalfund skv. gr. 4.0 í lögum félagsins:
4.0 Aðalfundir:
4.1 Stjórn félagsins skal boða til aðafundar í mars með minnst viku fyrirvara. Auglýsa skal eftir framboðum. Dagskrá aðalfundar skal vera venjuleg aðalfundarstörf auk annarra mála.
4.2 Á aðalfundi skal kjósa formann félagsins, gjaldkera og ritara.
4.3 Á aðalfundi skal kjósa tvo fulltrúa í námsnefnd. Kjósa skal ritstjóra og tvo ritnefndarmenn. Kjósa skal einn skorafulltrúa og einn deildarfulltrúa.
Eins og kemur fram hér fyrir ofan þá er fundurinn haldinn til að skipuleggja stjórn fyrir næstkomandi vetur. Þar sem enginn úr núverandi stjórn (formaður, varaformaður, gjladkeri og ritari) mun bjóða sig fram aftur vil ég hvetja alla sem hafa áhuga á að mæta og bjóða sig fram.
Ok, ég veit hvernig þetta lítur út... Enginn úr stjórn þessa veturs mun halda áfram, þetta hlýtur að vera ömurlegt job.
Það er alls ekki raunin heldur er öll núverandi stjórn sammála um að þetta sé skemmtilegt og gefandi starf. Það kemur líka andskoti vel út á ferilskrá ;)
Fundurinn skal haldinn þann 24. mars, staðsetning og tími auglýst síðar.
Þeir sem vilja kynna sér Torfhildi betur og lög hennar eru hvattir til að skoða heimasíðu félagsins http://www.hi.is/nem/Torfhildur/
Ég hvet alla sem er annt um félagslíf sitt og samnemenda sinna að mæta!
Kær kveðja,
Þorbjörg
-----
..og þess má einnig geta að starf ritstjóra vefsíðu Torfhildar (mitt djobb) verður laust til umsóknar á sama tíma.
Nú eru komnar upp myndir frá árshátíðinni (undir 'myndum' hér til hliðar) og síðustu tvö tölublöð af Torfa á .doc og .rtf formi (undir 'Torf-a' hér til hliðar).
Við fengum ennþá meiri afslátt á Talaðu við mig, miðaverðið er nú komið í 1.600krónur 1.900krónur. Skráningin er ennþá í gangi hérna til hliðar.
Og svo vil ég minna á ljóðaríið á morgun klukkan 21:00 á Stúdentakjallaranum. Þar koma fram ,,óþekkt háskólaskáld", segir hún Berglind, þægilegheit í fyrirrúmi og hljóðneminn síður en svo negldur í gólfið.
Íslenski dansflokkurinn var að frumsýna verkið Talaðu við mig í Borgarleikhúsinu og þau vilja bjóða okkur afslátt á sýninguna næstkomandi föstudag, þann 10. mars. Verðið er þá 2.300krónur í stað 2.900, og ef við náum að hóa saman temmilega stórum hóp lækkar miðaverðið eitthvað aðeins meira.
Þannig að ef þið hafið áhuga skulið þið skrá ykkur hérna [skráningu lokað um 14:00, 10/03] og við höfum svo samband með frekari upplýsingar þegar nær dregur.
Ljóðaríinu þeirra Berglindar og kó. hefur verið frestað fram á fimmtudag, 9. mars, en í staðinn flyst fyrirhugaður Orðastaður á kvöldið í kvöld, 6. mars.
(Það mætti jafnvel kalla þetta hrókeringu..)
Orðastaður verður semsagt í kvöld, mánudagskvöld, á Stúdentakjallaranum klukkan 21:00.
Meiri vitleysan. Þetta skrifast á mig. Orðastaðurinn er ekki lengur á dagskrá, en Ljóðaríið kemur í staðinn fyrir hann á fimmtudaginn. Klukkan 21:00 í Stúdentakjallaranum.
Skráning er opin til miðnættis á morgun. Þ.e.a.s. á mörkum 1. og 2. mars.
Uppfært: Skráningu lokað laust eftir miðnætti, 02/03.
Þeir sem eru búnir að skrá sig geta síðan sótt miðana sína í neðstu hæð Árnagarðs á morgun, miðvikudag, milli klukkan 11:30 og 14:30.
Eða á fimmtudaginn á sama stað milli klukkan 11:00 og 13:15 - Og svo aftur 14:30 til 15:00.
3.000 kall, gott fólk. Hraðbanki í Odda.
Tinna býður í upphitun fyrir þá sem vilja byrja snemma, en það hefst klukkan 17:00. Hún á heima á Eggertsgötu 24, íbúð 321.
Húsið opnar klukkan 19:00, mæting er í sal sem heitir Skáli á Hótel Sögu. Borðhald hefst klukkan 20:00, en þá verða nú allir mættir..
Þórný ætlar svo að halda partí fyrir lýðinn til að brúa bilið á milli borðhalds / skemmtunar og árshátíðarballs.
...
Og eitt enn, ótengt: Einn fyrirhugaðra mælenda á næsta orðastað datt út, og ef einhver hefur áhuga á að hlaupa í skarðið fyrir hann má sá hinn sami hafa samband við hana Tobbu.
Þær Björk og Berglind fleygðu þessu í mig núna áðan:
Ljóðarí Langar þig að jafna þig eftir fyllerí helgarinnar?
Mættu á Ljóðarí þar sem óþekk háskólaskáld munu lesa úr ljóðasöfnum sínum
Stúdentakjallarinn
Mánudaginn 6. mars kl. 21:00
Árshátíð Torfhildar verður föstudagskvöldið 3. mars á Hótel Sögu. Þar verða æðislegar veitingar og skemmtiatriði. Veislustjóri verður Atli Bollason. Nefndin er nú á fullu að skipuleggja þennan atburð og partý fyrir hópinn.
Matseðillinn er þó kominn á hreint en hann er:
Það verður náttúrulega annar aðalréttur í boði fyrir þá sem kjósa að borða ekki lífverur úr dýraríkinu.
Öll árshátíðin, með máltíð og balli, er á absúrd verði: kostar skitinn 3.000 kall. Skráning hefst þegar í dag en við tökum við peningunum 1. og 2. mars. (Auglýst síðar.) Smellið á ,,skráning á árshátíð" hér til hliðar.
Ef einhver hefur áhuga á að vera með skemmtiariði þá er það velkomið og hafið þá vinsamlegast samband við Þorbjörgu á thg2@hi.is
Eftir að árshátið Torfhildar er lokið hefst sameiginlegt árshátíðarball félaga í hugvísindadeild, sem verður einnig á Hótel Sögu.
Hann Hallur Þór bað mig um að koma þessari tilkynningu á síðuna:

Þannig er mál með vexti að ég er að verða kvarthundrað laugardaginn 25. feb, sem er bara eftir viku, og ætla að halda partí partíanna (þetta verður bara eins og endalok sögunnar hjá Hegel; náum hátindinum) í kjallara Celtic Cross það kvöld. Geimið byrjar bara upp úr átta, og hljómsveitin Hraun hefur upp raust sína og hljóðfæraleik um níuleytið.Og bara endilega að sjá alla bókmenntafræðinemana sem finnst að þeir eigi heima þarna...
Um að gera að kíkja ef þið eruð laus á laugardaginn..
Viðbót 22/02:Hann Hallur leggur orð í belg og bendir á áskorun sem hann birti á blóksíðu sinni núna rétt áðan.
..bara svona ef þið skylduð ekki lesa kommentin.
Mími hefur gengið eitthvað illa að fá fólk til að skrá sig í vísindaferð til Orkuveitunnar á morgun, þannig að þau ætla að láta okkur fá 10 sæti. Nú er það bara fyrstur kemur, fyrstur fær; skráning hefst hér og nú.
Hérna, semsagt [Skráningu lokað um fimmleytið á föstudegi, eftir grátlega dræmar undirtektir].
Ferðin er semsagt á morgun, þann 17. febrúar kl. 16:30 í Orkuveitu Ríkisins, Bæjarhálsi 1.
Vil bara minna ykkur á næsta Orðastað, sem verður á fimmtudaginn kemur klukkan 21:00 á Dillon. Sigga, Sunna og Dísa tala, og einsog venjulega verður bjórinn á 400kall fyrir skírteinishafa.
Þetta var aldeilis fín vísindaferð. Miklar þakkir til Eddu, sem tók vel á móti okkur.
Hún Guðrún Hulda, sem hélt partíið eftir vísindaferðina, hafði hins vegar samband núna áðan þar sem hún saknaði tveggja hluta úr íbúðinni sinni:
Í fyrsta lagi komst ég að því að þegar frekar stutt var liðið á partýið að myndavélin mín var horfin. Þetta er gömul kodak powershot s300 vél með ógeðslega stóru minniskorti og fullt af persónulegum myndum :(Öðru lagi þá var svona grænn gaur í stofunni, einhverskonar bangsi :) . Hann fékk Baldur meðleigjandinn minn að gjöf á jólunum frá systur sinni, sem þurfti að panta hann frá Japan svo það er ekkert lítið mál að endurheimta annan. Þetta er einhver fígúra úr tölvuleik held ég, final fantasy ... allavega, erfitt að fá annan og því mjööööööööög leiðinlegt ef einhver hefur bara óvart tekið hann.
Eins manns drasl er annars kærlighed svo ef einhver veit um þessa hluti vinsamlegast skilið þeim.
Ef þið hafið einhverja hugmynd um þessa hluti hafið þá endilega samband við hana Guðrúnu, ghp2@hi.is , 698-2367 eða Mánagötu 19.
Skráið ykkur hér. [Skráningu lokað kl. 16:00 þann 3/02.]
Hún Edda býður okkur í heimsókn til sín á föstudaginn næstkomandi, þann 3. febrúar. Það verða víst einhverjir sagnfræðinemar þarna líka, en það er auðvitað bara hið besta mál, og enn nóg pláss fyrir okkur. Það eru þrjátíu sæti laus fyrir bókmenntafræðina og skráning hefst á hádegi á morgun. Hér á Torfhildarsíðunni, eins og venjulega. Edda útgáfa er til húsa að Suðurlandsbraut 12, og það ganga örugglega einhverjir nettir strætisvagnar þangað.
Mæting klukkan 17:00. Skráning á morgun. Edda. Vísó. Sjáumst.
Okkur þykir það mjög leitt en nú hefur miðvikudagssýningunni á Woyzeck, þeirri sem við áttum að fá inná í staðinn fyrir sunnudaginn (sem var seldur undan okkur), verið aflýst. Það er óljóst með framhaldið, en það virðist a.m.k. útséð með það að við komumst ekki í leikhús á miðvikudaginn.
Sérstaklega vil ég biðja þá afsökunar sem skráðu sig í tvígang til að fá miða á þessa sýningu, en við getum bara ekkert að þessu gert. Því miður.
Það verður haldið nýnemadjamm heima hjá honum Sveinbirni (fulltrúa nýnema í stjórn) á föstudaginn næstkomandi, þann 27. janúar, að Nesvegi 76. (Hús með stórum gluggum, gott fólk. Hafið augun opin fyrir húsi með stórum gluggum.)
Allir bókmenntafræðinemar eru velkomnir, en nýnemar eru sérstaklega hvattir til að láta sjá sig, enda dregur þetta geim nafn sitt af þeim. Það verður einhver dýrindis bolla í boði (ekki á mynd), dæmið byrjar klukkan 21:00 og fyrstir koma, fyrstir fá.
Erkistuð.
Í dag fengum við að vita að miðarnir sem áttu að vera fráteknir fyrir okkur á sunnudaginn voru bara seldir einhverjum kónum út í bæ, þannig að ferðinni verður að fresta þar til á miðvikudaginn eftir viku, þann 1.febrúar.
Þetta er náttúrulega versta mál, og okkur þykir þetta mjög miður, en vonandi kemur þetta ekki til með að eyðileggja of mörg framtíðarplön.
Það er nú ekki hægt að búast við því að allir þeir sem pöntuðu miða á sunnudagssýninguna komist á þriðjudaginn, þannig að ég ætla að stroka út skráninguna eins og hún leggur sig. Þið sem voruð búin að skrá ykkur (og ykkar) þurfið því að skrá ykkur aftur, en ég held það sé einfaldara og þægilegra en að hlaupa á eftir hverjum og einum til að athuga hvort viðkomandi ætli að halda pöntuninni sinni.
Skráið ykkur hérna. [Aflýst 25/01]
Við eigum 25 sæti pöntuð fyrir miðvikudaginn, og það verður vonandi nóg. Sýningin hefst klukkan 20:00.
Eins og áður sagði er verðið 1.500kall per miða, og peningunum verður að skila í síðasta lagi á mánudaginn til annaðhvort Tinnu eða Tobbu (sjá netföng og símanúmer í 'stjórninni' hér til hliðar).
Á sunnudaginn næstkomandi, þann 29. janúar Á miðvikudaginn næstkomandi, þann 1. febrúar [uppfært, sjá tilkynningu hér ofar], er stefnan tekin á Borgarleikhúsið þar sem okkur býðst að sjá Woyzeck á stóra sviðinu fyrir örfáar krónur. Við hefjum skráningu hérmeð, og hún stendur fram að hádegi föstudags.. og ykkur er náttúrulega guðvelkomið að taka einhvern með ykkur, takið það bara endilega fram í skráningunni.
Miðaverð er 1.500krónur og eftir sýninguna verður víst eitthvað spjall við leikarana. Um að gera, hmm?
Skráið ykkur hérna. [sjá ofar]
...
Og það er kannske ekki úr vegi að minnast á að þetta er hundraðasti fréttapósturinn síðan.. ja, síðan þessi síða var tekin í gegn og talning hafðist. Gaman að því. Færslu númer 001 má sjá hér, en hún er opnunarávarp frá þáverandi formanni. Eins og vera ber.
Bókmenntafræðinemar og aðrir sem kunna að ráfa hingað inn!
Nú ætlum við að endurvekja málgagnið okkar; hinn gífurlega, geysivinsæla og glæsta Torfa. Til þess þurfum við efni. Til þess þurfum við ykkur. Til þess þurfum við að fá ykkur til að senda inn efni.
Sendið hvað sem er: Greinar, myndir, gagnrýni, umfjöllun, brandara, ljóð, sögur, hvað sem er – Torfi tekur allt inn.
Efni sendist á emil@hi.is.
Kveðjur og kjams,

Á morgun kíkjum við í vídjó.
Klukkan hálfátta verður kvikmyndin Bonnie and Clyde (1967) sýnd í stofu (eða sal?) 101 í Odda. Fjórir af hverjum fimm kvikmyndaspekúlöntum telja þessa mynd með mikilvægustu bandarísku ræmum sjöunda áratugarins, en tagglínan segir ef til vill flest það sem segja þarf:
They're young... they're in love... and they kill people.
Hljómar það ekki bara helvíti vel?
Viðbót-um-hádegi: Hún Guðrún Vaka býður okkur í afmælið sitt á laugardaginn. Spennó.