NÁMSLEIÐIR

Söfnun og úrvinnsla rafrænna heilsufarsgagna
Aðaláherslur í þessari námsleið eru á aðferðafræði við úrvinnslu rafrænna heilsufarsgagna og nýtingu gagnagrunna í rannsóknum á sviði faraldsfræði, heilsuhagfræði og útkomurannsókna.

Nýting upplýsingatækni við ákvarðanir á heilbrigðissviði
Aðaláherslur í þessari námsleið eru á gerð og notkun upplýsingagagnagrunna í klínískri ákvarðanatöku, stjórnun og stefnumótun innan heilbrigðiskerfisins

Gagnasöfn á heilbrigðissviði
Aðaláherslur í þessari námsleið eru á gagnagrunna innan heilbrigðiskerfisins; skilgreiningu og flokkun gagna til rannsókna og gæðaeftirlits; flokkunar- og kóðakerfi, smíði og uppbyggingu gagnasafna og gæði gagna.

Öryggi í umsýslu heilsufarsgagna
Aðaláherslur í þessari námsleið eru á siðferðilegar, lagalegar, tæknilegar og stjórnsýslulegar aðferðir sem beita má til að tryggja persónuvernd, friðhelgi einkalífsins og gagnaöryggi en jafnframt ábyrga og hagnýta notkun gagna á heilbrigðissviði.


Nám í upplýsingatækni á heilbrigðissviði


Hjúkrunarfræðideild - Læknadeild - Félagsvísindadeild - Verkfræðideild - Lyfjadeild