Umsóknarfrestur er til 15. mars

Stundaskrá haust 2005


ALMENNAR UPPLÝSINGAR

Nám í upplýsingatækni í heilbrigðisvísindum er tveggja ára þverfaglegt, rannsóknatengt nám á meistarastigi, sem hófst haustið 2004. Námið er skipulagt sameiginlega af þeim háskóladeildum sem aðild eiga að náminu, sem eru félagsvísindadeild, hjúkrunarfræðideild, lyfjafræðideild, læknadeild, og verkfræðideild. Einnig á LSH aðild að náminu.

Námsstjórnina skipa:

Ásta Thoroddsen, dósent, astat@hi.is, hjúkrunarfræðideild
Gísli Pálsson; prófessor, gpals@hi.is, félagsvísindadeild
Anna Birna Almarsdóttir, dósent, annaba@hi.is, lyfjafræðideild
María Heimisdóttir, aðjúnkt, mariah@landspitali.is, læknadeild
Hjálmtýr Hafsteinsson, dósent, hh@hi.is, tölvunarfræðiskor

Tilgangur og markmið
Tilgangur námsins er að veita þverfaglega, hagnýta, sem og fræðilega menntun til starfa á ýmsum sviðum er snerta upplýsingatækni á heilbrigðissviði.
Markmið námsins er að koma til móts við þarfir samfélagsins um rannsóknir, þróun, þjónustu og stefnumótun sem tengist skráningu, meðhöndlun og vinnslu gagna á sviði heilbrigðismála.

Lokaverkefni

Þungamiðja námsins er eigið rannsóknar- eða þróunarverkefni innan upplýsingatækni á heilbrigðissviði og ritgerð sem byggist á því. Æskilegt er að verkefnið sé unnið í samstarfi við stofnanir eða fyrirtæki. Verkefnið getur verið 15 til 30 eininga.

Kennarar
Kennarar koma bæði úr röðum fastra kennara Háskóla Íslands og úr atvinnulífinu. Umsjónarkennari hvers nemanda kemur ávallt úr röðum fastráðinna kennara Háskólans. Leiðbeinandi, sem er sérfræðingur á viðkomandi fræðasviði, er að jafnaði fastráðinn kennari við Háskóla Íslands en getur einnig verið starfandi utan Háskólans.

Umsókn
Umsóknarfrestur er til 15. mars fyrir innritun á haustmisseri. Unnt er að sækja um inngöngu í meistaranám á sérstöku eyðublaði sem fæst á deildaskrifstofum Háskóla Íslands. Umsókninni skal síðan skilað til skrifstofu hjúkrunarfræðideildar.

Hver veitir upplýsingar?
Upplýsingar veitir Þórana Elín Dietz, verkefnastjóri framhaldsnáms við hjúkrunarfræðideild, thorana@hi.is
Nánari upplýsingar um nám í upplýsingatækni á heilbrigðissviði veitir Ásta Thoroddsen, dósent og formaður námsstjórnar, sími 525-4981, astat@hi.is

Kostnaður
Ekki eru innheimt skólagjöld fyrir námið. Nemendur þurfa hins vegar að greiða innritunargjöld Háskóla Íslands.

Fullt nám - Einstök námskeið
Nám í upplýsingatækni á heilbrigðissviði er fullt tveggja ára nám, en unnt er að ljúka náminu á fjórum árum. Óski nemendur eftir að taka einstök námskeið og ljúka þeim með námsmati þarf leyfi kennara og viðkomandi deildar, þar sem námskeiðið er skráð. Sé námskeið kennt í samstarfi við Endurmenntun Háskóla Íslands, er nemendum beint þangað óski þeir eftir að taka einstök námskeið.

Hjúkrunarfræðideild - Læknadeild - Félagsvísindadeild - Verkfræðideild - Lyfjadeild