Miðvikudaginn 4. september 1996 kl. 12.22 var haldinn fundur í deildarráði verkfræðideildar í fundaherberginu í VR-II.
Mættir voru: Björn Kristinsson, Jónas Elíasson, Sigurður Erlingsson, Sæmundur Óskarsson, Valdimar K. Jónsson, Alfreð Hauksson og Halldór Eyjólfsson.
Fundarritari var Pálmi Jóhannesson.
Þetta gerðist:
Umsóknarfrestur um stöðu prófessors í rafmagns- og tölvuverkfræðiskor rann út 1. september sl. Aðeins bárust tvær umsóknir. Deildarforseti lagði til að umsóknarfrestur yrði lengdur um einn mánuð og var það samþykkt samhljóða eftir nokkrar umræður.
Haukur Einarsson, sem er í meistaranámi undir umsjón Júlíusar Sólness, hefur óskað eftir því að haldið verði fyrir hann sérnámskeiðið Umhverfisstraumfræði. Erindinu var hafnað.
Lagt fram bréf frá Pétri K. Maack. Annika Werneman, sænsk stúlka, hefur sótt um að ljúka 15 eininga meistaraprófsverkefni hérlendis undir handleiðslu hans á Nordplusstyrk. Eftir talsverðar umræður urðu menn sammála um að deildin gæti ekki staðið straum af kennslunni en deildarforseta var falið að reyna að leysa málið með öðrum hætti.
Lagt fram bréf vísindanefndar varðandi Jón Matthíasson sem sótti um meistaranám við deildina í vor. Beðið var um ítarlegri upplýsingar um nám hans á fundi deildarráðs 8. maí sl. Vísindanefnd hefur yfirfarið viðbótargögn frá Jóni og samþykkt nám hans. Fallist var á að heimila Jóni að hefja meistaranámið að því tilskildu að deildin bæri engan kostnað af því.
Sú breyting hefur orðið á styrkjum úr rannsóknanámssjóði að framlag til deilda hefur verið fellt niður. Urðu um málið miklar umræður og eins hvort deildin gæti haldið áfram að taka þrjá nemendur á ári í meistaranám á sinn kostnað. Ákvörðun var frestað.
Þrjár umsóknir bárust um stöðu prófessors í jarðtækni og grundun. Umsækjendur voru Björn Birgisson, Jón G. Skúlason og Sigurður Erlingsson. Byggingarverkfræðiskor samþykkti á fundi sínum að óska eftir því að Jónas Elíasson yrði skipaður fulltrúi deildar og ennfremur að ráðning Sigurðar Erlingssonar í stöðu dósents yrði framlengd til 31. desember 1997. Deildarráð samþykkti samhljóða tilmæli u&b.
Formenn skoranna gerðu grein fyrir stöðunni sem er slæm þótt greina megi einhvern bata á árinu.
Málið verður tekið fyrir á næsta deildarfundi sem verður boðaður síðar í mánuðnum. Skorir munu fjalla um málið þangað til.
Rætt um hlutverk senats deildarinnar.
5. október nk. verður haldið sk. menntaþing. Hugmynd er um að verkfræðideild útbúi veggspjald til að setja upp á þinginu. Málið tekið upp á næsta fundi.
Deildarforseti minnti á samkomu sem verkfræði- og raunvísindadeildir standa að ásamt rektori í Skólabæ föstudaginn 6. september nk. Þar verður Sigurður V. Friðþjófsson skrifstofustjóri kvaddur og Jón Guðmar Jónsson boðinn velkominn til starfa.
Sigurður Erlingsson átaldi hvað dregist hefði að rýma húsnæði í VR-III þar sem meistaranemum hafði verið lofað aðstöðu. Sigurður fór fram á að deildarforseti beitti sér í málinu. Valdimar K. Jónsson skýrði frá ástæðum fyrir drættinum.
Jónas Elíasson fór fram á að nefndin um tækninám á Íslandi yrði boðuð á fund með deildarráði á næstunni til að fara yfir hvernig þau mál stæðu nú.
Fleira gerðist ekki.
Punktar úr fundargerð lesnir og samþykktir.
Fundi slitið kl. 14.05.